hafnarstjórn Hornafjarðar
166. fundur
15. ágúst 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Reynir Arnarson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Óskar Arason
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Sjóvörn við Vélaverkstæði Fiskimjölverksmiðjunnar
Sigurður Guðmundsson fór yfir málið. Búið er að stöðva landbrotið eins og ákveðið var á 164.fundi hafnarstjórnar. Búið er að sækja um endurgreiðslu til Vegagerðarinnar vegna framkvæmdarinnar. Samþykkt hefur verið af Vegargerðinni að vísa kostnaði við landbrotið til endurskoðunar á samgönguáætlun 2015-18.
2.
Innsigling um Hornafjarðarós
Sigurður Guðmundsson sagði að út er að koma önnur skýrsla vegna grynnslanna og mögulegra úrbóta. Drög af skýrslunni eru væntanleg á næstu dögum og verður hún kynnt hafnarstjórn. Ákveðið hefur verið að halda málþing þann 10.september í tengslum við útkomu skýrslunnar.
Starfsmönnum falið að halda áfram að undirbúa málþingið.
Starfsmönnum falið að halda áfram að undirbúa málþingið.
3.
Fuglavarnir Krosseyjarbryggju
Sigurður Guðmundsson fór yfir málið. Búið er að vinna þarfagreiningu fyrir löndunarbryggju framan við Skinney Þinganes og nær þetta yfir svæðið á milli löndunarkrananna. Óskað er eftir að Hafnarstjórn komi að verkefninu eða takið það yfir að öllu.
Starfsmönnum falið að afla frekari upplýsinga um útfærslumöguleika og kynna fyrir öðrum hagsmunaaðilum.
Starfsmönnum falið að afla frekari upplýsinga um útfærslumöguleika og kynna fyrir öðrum hagsmunaaðilum.
4.
Hafnasambandsþing 2014
Valdemar Einarsson tilkynnti að við ættum fjóra fulltrúa og bar upp tillögu um að Sigurður Guðmundsson,Valdemar Einarsson, Reynir Arnarson og Bryndís Hólmarsdóttir. Tillaga samþykkt samhljóða.
Starfsmanni falið að ganga frá skráningu fulltrúa, bóka bíl og gistingu.
Starfsmanni falið að ganga frá skráningu fulltrúa, bóka bíl og gistingu.
5.
Stefna í hafnarmálum 2014-2019
Sigurður Guðmundsson tilkynnt að haft var samband við þrjár arkitektarstofur sem hafa reynslu af gerð deiliskipulags á hafnarsvæði og höfðu tvær þeirra samband og sýndu verkinu áhuga. Hafnarstjórn sammála um að senda þeim arkitektarstofum teikningar af hafnarsvæðinu, stefnu í hafnarmálum, hafnarreglugerðina ásamt óstaðfestu deiliskipulagi af hafnarsvæðinu frá 1987 og óska eftir áætluðum kostnaði við gerð deiliskipulags.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Næsti fundur ræddur, áætlað að halda hann 8.september.