Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

167. fundur
9. september 2014 kl. 13:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Óskar Arason forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Innsigling um Hornafjarðarós
Málsnúmer 200803042
Rætt um fyrirkomulag á umræðum að afloknum fyrirlestrum. Nefndin sammála um að eftir erindi skýrsluhöfunda verði umræðuhópar og nefndarmenn skipti sér niður á borðin og taki niður punkta frá þeim umræðum. í lokin verður pallborð með þeim aðilum sem flytja framsögu. Reynir vakti athygli á að einn liður í þessu rannsóknarferli væri að fá óháðan aðila til að fara yfir niðurstöður skýrslunnar eða þarf að vinna meira í gagnasöfnun áður en slík vinna fer í gang.
2.
Fuglavarnir Krosseyjarbryggju
Málsnúmer 201408004
Sigurður Guðmundsson skýrði frá viðræðum aðra aðila sem nýta aðstöðu við höfnina telja þeir þetta vera mál hafnarinnar að leysa. Reynir nefndi að ekki væru allir sammála um að þessi nýja tækni væri að virka þ.s. varnarhljóð fugla.
Nefndin sammála um að taka þátt í verkefninu á grunni innsendra gagna allt að 500 þ.kr. Einnig er þeim tilmælum beint til starfsmanna að taka myndir af fugli á og við bryggjuna þannig að raunverulegur árangur af þessu verkefni verði sýnilegur.
3.
Starfsmannamál Hornafjarðarhafnar 2014
Málsnúmer 201409012
Sigurður Guðmundsson vék af fundi undir þessum lið. Hafnarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
4.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Fulltrúar á nýafstöðnu hafnarsambandsþingi sögðu frá helstu málum sem þar voru til umræðu. Umfjöllun var um ný hafnarlög og hvaða áhrif það hefur á rekstur hafnarinnar. Fram kom að gera þarf umhverfisstefnu fyrir höfnina. Fundargerð og punktar fundarins hafa ekki borist en verða settir fyrir Hafnarstjórn síðar.
Sigurður Guðmundsson útskýrði ákveðið misræmi í núllpunkti sem fram kom við rannsóknir á skýrslu Vegargerðarinnar. Köfunarþjónustan var fengin til að gera þessar mælingar þar sem bátur Siglingastofnunar hefur venjulega gert. Nú hefur reikningurinn kominn frá Köfunarþjónustunni og er hann töluvert hærri en reiknað var með. Hafnarstjórn sammála um að taka það sem uppá vantar af liðnum viðhald hafnarmannvirkja.