hafnarstjórn Hornafjarðar
168. fundur
9. október 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Óskar Arason
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Tómas Ellert Tómasson
yfirmaður umhverfis og tæknisviðs
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Karl Sigurður Guðmundsson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Tómas Ellert Tómasson framkvæmda-og umhverfisstjóri sat á fundinum undir þessum lið og fer yfir vinnslu í málinu, og svör við spurningum til þeirra tveggja arkitektastofa sem leitað var eftir verðtilboðum frá.
Almennar umræður um deiliskipulag og svæðið, staðsetningu vigtarinnar og fleira.
Almennar umræður um deiliskipulag og svæðið, staðsetningu vigtarinnar og fleira.
2.
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Skinney.
Tómas Ellert situr fundinn undir þessum lið og fór yfir ferilinn í málinu, umsókn til fjármálaráðuneytis og umsóknir og samþykkt Sveitarfélagsins til framkvæmda í námunni, nú er beðið eftir að Alþingi samþykki samgönguáætlun til að hægt sé að ýta á að farið verði af stað með útboð í strandvörn á Suðurfjörum.
Búið er að gera fornleifarannsókn á svæðinu. Búið er að gefa út framkvæmdaleyfi á námuna.
Hafnarstjórn vísar því til starfsmanna að ýta á vegagerðina að undirbúa útboðsgögn vegna strandrofs á Suðurfjörum.

3.
Innsigling um Hornafjarðarós
Sigurður gerir grein fyrir að vinna við samantekt á málþinginu sé í gangi en ekki kláruð, einnig að Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri og Lovísa Rósa Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar hafi farið á fund með fjárlaganefnd þar sem lögð var áhersla á að tryggja þurfi fjármagn til frekari rannsókna á innsiglingunni og grynnslunum. Stefnt er á að fá fund með Vegagerðinni á næstunni til að ræða skipulag áframhaldandi rannsókna.
Hafnarstjórn spyr sig þeirrar spurningar hvort kostnaður við mælingarvinnu eigi ekki að detta inn í rannsóknarfé.
Hafnarstjórn er sammála um að kanna hvort hægt sé að vinna verkefnið að stórum hluta hér á Hornafirði í samvinnu við Háskólasetur í Nýheimum.

4.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2015
Sigurður fer yfir vinnu sem hefur verið í fjárhagsáætlun og framkvæmdaáætlun, umræður skapast um viðgerðir á þili á Miklagarðasbryggju og kostnaði við það, umræður um grjótgarða meðfram höfnini og malbikun á smábátaplani, rætt um staura og Dengsabryggju, rætt um kostnað við rofvörn á Suðurfjörum.
Rætt um að fara vettvangsferð um hafnarsvæðið fyrir næsta fund, einnig að fá Ástu H Guðmundsdóttur fjármálastjóra til að skýra fjárhagsáætlun.
Starfsmanni falið að fá nýja kostnaðaráætlun í malbikun á smábátaplani og grjótvarnir.

5.
Fuglavarnir Krosseyjarbryggju
Sigurður segir frá svari sem Guðmundur Gunnarsson sendi og að málið sé komið í góðann farveg, að nálgun hafi verið eins og rætt var á síðasta hafnarstjórnafundi, um að Skinney - Þinganes panti inn búnaðinn og setji upp með þriðja hátalara við löndunarkrana nyrst á Krosseyjarbryggju og við greiðum allt að 500.000 kr í verkefninu.
6.
Farþegaskipamál
Sigurður leggur fram ferðaskýrslu eftir ferð til Barcelona á farþegaskiparáðstefnu, taldi hann ferðina hafa gengið vel og verið ein skilvirkasta sýningin til þessa, óskaði hann eftir að hafnarstjórn veitti honum heimild til að útbúa nýjann kynningarbækling fyrir höfnina þar sem fyrri bæklingur sem var gerður árið 2011 væri nú búinn.
Hafnarstjórn vísar því til starfsmanns að láta útbúa nýjan bækling.
Hafnarstjórn ræddi um hvort hægt væri að auka samstarf Ríkis Vatnajökuls og hafnarinnar.
Hafnarstjórn vísar því til starfsmanns að láta útbúa nýjan bækling.
Hafnarstjórn ræddi um hvort hægt væri að auka samstarf Ríkis Vatnajökuls og hafnarinnar.
7.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Engin önnur mál.