Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

169. fundur
20. nóvember 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Óskar Arason forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Málsnúmer 201409090
Borist hafa verðhugmyndir í gerð deiliskipulags Hafnarinnar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að fara yfir verðhugmyndir sem bárust og koma með tillögu að verktaka í samráði við umhverfis og tæknisvið.
Hafnarstjórn óskar eftir því við Bæjarstjórn Hornafjarðar að hún heimili að farið verði í gerð deiliskipulags hafnarsvæðis.
2.
Viðhald á bryggjum - Zink
Málsnúmer 201311052
Í framhaldi af ástandsskoðun Miklagarðs- og Bræðslubryggju kom verðtilboð í lagfæringar frá Köfunarþjónustunni. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna útboðsgögn og bjóða verkið út.
3.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2015
Málsnúmer 201409089
Farið yfir drög að fjárhagsáætlun hafnarinnar 2015 ásamt framkvæmdaáætlun en í henni kemur fram ósk um 19 milljón krónu framkvæmdir á árinu 2015. Hafnarstjórn vísar fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir árið 2015 til bæjarstórnar ásamt ósk um hækkun á framkvæmdarramma um 4 milljónir.
4.
Gír og vélbúnaður í Björn lóðs
Málsnúmer 201311026
Sigurður fór yfir forsögu málsins og sagði Björn Lóðs vera 23 ára. Það eru brotnar tennur í báðum gírum því ekki mögulegt að beita bátunum á fullu afli. í síðasta kjörtímabili var þetta rætt og skoðað hvort skynsamlegt væri að skipta um bæði vélar og gíra eða bara gíra.
5.
Samgönguáætlun 2015-2018 umsóknir
Málsnúmer 201411002
Hafnarstjóri hefur talaði við Sigurð Sigurðsson mánudaginn 10.nóvember vegna áfamhaldandi rannsókna á Grynnslum og er verið að gera áætlun meðal annars hafa Vatnaskil aðgang að líkani sem getur skilað áætlun um áhrif landriss á innsiglinguna. Einnig er meistaranemi sem kom á málþingið þann 10.sept síðastliðinn að kanna hvað er til af efni um svipaða ósa og Hornafjarðarós er annars staðar í heiminum. Hafnarstjórn leggur mikla áherslu nú sem fyrr að í framkvæmdum við strandrof á innanverðum Suðurfjörum verði vegurinn út í Hvanney byggður upp að nýju. Einnig óskar hafnarstjórn eftir að fá að sjá drög að útboðsgögnum þegar þau eru tilbúin. Sigurður Guðmundsson upplýsti að búið er að sækja um fé til viðhaldsdýpkun Hornafjarðarhafnar til Siglingarsvið Vegagerðarinnar vegna næstu þriggja ára.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Sigurður Guðmundsson lagði fram tvær tillögu að nýju merki Hafnarsambands Íslands og óskað eftir að hafnarstjórn kjósi milli þeirra. Atkvæðagreiðsla fór fram að loknum miklum umræðum um kosti og galla framlagðra tillagna. Niðurstað kosningar var afdráttarlaus, Tillaga 1 fékk eitt atkvæði og tillaga 2 fékk 4 atkvæði. Starfsmanni falið að koma niðurstöðu kosningar til Hafnarsambands Íslands.
Valdemar Einarsson og Bryndís Hólmarsdóttir skýrðu frá samtali í Nýheimum við Þorvarðar Árnason og Kristínu Hermannsdóttur um þá þekkingu sem til er í Nýheimum til að vinna að gerð umhverfisstefnu hafnarinnar. Hafnarstjórn óskar eftir að fá Þorvarð og Kristínu á næsta fund nefndarinnar.
Reynir Arnarson spurði um hvernig gengi með viðhald á Hellisvita. Sigurður upplýsti að verkið gangi vel er að klárast.
Bryndís spurði um gang mála með flotbryggjur stefnt er að því að þær verði komnar aftur í sjó um miðjan desember.