Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

170. fundur
17. desember 2014 kl. 14:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Sigurður Ægir Birgisson 1. varamaður
Vignir Júlíusson fulltrúi starfsmanna
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Karl Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfisstefna Hornafjarðarhafnar.
Málsnúmer 201412021
Þorvarður Árnason frá Rannsóknarsetri Háskóla Íslands og Kristín Hermannsdóttir frá Náttúrustofu voru gestir fundarins undir þessum lið. Kristín og Þorvarður kynntu fyrir hafnarstjórn hugmyndir um gerð umhverfisstefnu hafnarinnar.
Væntanlega eru leiðbeiningar frá Hafnasambandi Íslands um gerð umhverfisstefnu fyrir hafnir.
Hafnarstjórn er sammála um að bíða eftir þeim leiðbeiningum.
2.
Viðhald á bryggjum - Zink
Málsnúmer 201311052
Sigurður Guðmundsson forstöðumaður hafnarinnar greindi frá að enn er verið að vinna að verðkönnun.
Frestað.
3.
Umsókn um áframhaldandi rannsóknir á Grynnslum.
Málsnúmer 201412024
Vignir Júlíusson starfsmaður hafnarinnar greindi frá niðurstöðum frá málþingi hafnarinnar um Grynnslin sem haldin var í október sl. greindi frá að ekki er hafin rannsóknarvinna við Grynnslin að hálfu Vegagerðarinnar eins og hafi komið fram eftir málþingið.
Bréf frá Hreini Haraldsyni lagt fram þar sem kom fram að "Það er því miður einfaldlega þannig að það þarf fjármuni til að standa að þessum rannsóknum og þá fær Vegagerðin ekki, þrátt fyrir að hafa þrýst á um það."
Hafnarstjórn harmar að ekki sé gert ráð fyrir fjármunum að hálfu ríkisins til rannsókna á Grynnslunum.
Starfsmönnum falið að leita leiða til að fjármagna rannsóknir á Grynnslunum.
4.
Farþegaskipamál
Málsnúmer 201212040
Sigurður greindi frá að Cruise Iceland verður með 10 fermetra bás á Seatrade, Miami í mars 2015 básinn verður mannaður af fulltrúa félaga í CI.
Hafnarstjórn samþykkir að nýta sameiginlegan fulltrúa Cruise Iceland.
5.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2015
Málsnúmer 201409089
Valdemar kynnti að bæjarráð hafi hafnað aukaframlagi til ramma við fjárhagsáætlun hafnarinnar 2015.
Framkvæmdarammi fyrir árið 2015 lagður fram. Hafnarstjórn óskar eftir að fá stöðuna fyrir árið 2014 fyrir næsta fund.
Hafnarstjórn gerir tillögu að breytingu á framkvæmdaramma þar sem fara þarf í deiliskipulagsvinnu, starfsmönnum falið að gera breytingar á framkvæmdaramma samkvæmt umræðum á fundinum.
Samþykkt.
6.
Landbrot á Suðurfjörum
Málsnúmer 201201071
Sigurður greindi frá að útboðsvinna er hafin vegna viðgerða á landbroti á Suðurfjörum.
Starfsmönnum falið að óska eftir hönnunargögnum vegna landbrots á Suðurfjörum og leggja fyrir næsta fund hafnarstjórnar.
7.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Bryndís spurði um stöðu mála vegna flotbryggju.
Sigurður greindi frá að vinna er hafin við að koma niður flotbryggju og mun ljúka hið fyrsta.
Sigurður Einar spurði hvort ekki væri hægt að bjóða varamönnum á fund hafnarstjórnar fyrir vorið.
Valdemar spurði hvort hafin væri vinna við fuglavarnir sem hafnarstjórn vinnur að, Sigurður greindi frá að ekki vinna er ekki hafin við verkið.
Sigurður greindi frá að endurskoðunarvinna er hafin við enduskoðun á gjaldskrá hafnarinnar.
Bryndís greindi frá að bæjarstjórn hefur gert breytingar á samþykktum sveitarfélagsins og sagði frá helstu breytingum.