hafnarstjórn Hornafjarðar
171. fundur
12. febrúar 2015
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Sigurður Ægir Birgisson
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Karl Sigurður Guðmundsson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Karl Sigurður Guðmundsson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Viðhald á bryggjum - viðgerðir á þili
Björgvin Óskar Sigurjónsson hjá Verkfræðiþjónustunni mætti á fundinn undir þessum lið. Fór hann yfir gögn vegna verðkönnunar á viðgerðum á Miklagarðs og Bræðslubryggju. Farið var yfir fyrihugað vinnufyrirkomulag vegna verksins. Hafnarstjórn samþykkir framlögð gögn og felur starfmönnum að senda gögnin til verktaka sem gætu boðið í verkið.
2.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Tómas Ellert mætti á fundinn undir þessum lið. Alta var með hagstæðasta verðið í gerð deiliskipulags hafnarinnar.Næst er heimsókn skipulagsarkitekt Alta á svæðið til að fara yfir aðstæður. Enn er beðið eftir loftmynd af svæðinu sem væntanleg í næstu viku. Hafnarstjórn leggur mikla áherslu á að ef loftmynd verði ekki klár í næstu viku þá munu starfsmenn Alta koma vikunni þar á eftir og taka út svæðið svo búið verði að vinna einhver gögn fyrir næsta fund Hafnarstjórnar.
3.
Landbrot á Suðurfjörum
Vignir Júlíusson og Sigurður Guðmundsson fóru yfir teikningar af sjóvörn á Suðurfjörum. Hafnarstjórn fagnar því að til stendur að bjóða verkið út á laugardaginn 14.febrúar 2015. Hafnarstjórn minnir á fyrri bókanir um málið og fjármuni því tengdu.
4.
Fundur með Samgöngustofu á Reyðarfirði
Valdemar Einarsson fór yfir fund sem hann og Sigurður Guðmundsson fóru á til Reyðarfjarðar. Samgöngustofa er að taka yfir ákveðið eftirlit með samgöngumannvirkjum og falla hafnarmannvirki þar undir. Hafnarstjórn hefur af því ákveðnar áhyggjur að kostnaður og flækjustig vegna framkvæmda hafna aukist við þessar breytingar.
5.
Uppfærslur í Trimble mælingartæki
Vignir kynnnti tilboð vegna hugbúnaðaruppfærslu vegna GPS mælitækis hafnarinnar. Hafnarstjórn samþykkir að kaupa uppfærsluna.
6.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2015
Sigurður fór yfir hugmyndir af breytingum á gjaldskrá. Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar.
7.
Fuglavarnir Krosseyjarbryggju
Sigurður Guðmundsson fór yfir stöðu málsins. upplýst var að komnir eru upp 3 hátalarar og virðist kerfið virka mjög vel. Einhverjar fínstillingar eru eftir og unnið er að þeim.
8.
Styrkumsókn v heimildarmyndar um sögu vita á Íslandi
Sigurður Guðmundsson kynnti málið. Í fjárhagsáætlun hafnarinnar er ekki gert ráð fyrir fjárheimildum til slíkra verka.Hafnarstjórn tekur jákvætt í að starfsmenn hafnarinnar aðstoði eftir föngum við tökur myndarinnar hér á svæðinu. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að koma beiðninni til menningarmálanefndar.
9.
Verkfallsheimild opinberra starfsmanna
Til kynningar.
10.
Kranaleiga Breiðdalsvík
Sigurður Guðmundsson fór yfir málið og stöðuna. Löndunarkrani var leigður til Breiðdalsvíkur ekki hefur verið greidd leiga vegna ársins 2014. Starfsmanni falið hafa samband við hafnarsjóð á Breiðdalsvík og leiða málið til lykta.
11.
Fundargerðir Cruise Iceland.
lögð fram til kynningar.
12.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands
lögð fram til kynningar
13.
Óviðunandi dýpi vegna löndunar við Bræðslubryggju
Farið yfir upplýsingar um dýpi í höfninni. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samtarfi við Siglingarsvið Vegagerðarinnar. Hafnarstjórn leggur áherslu á að viðunandi lausn fáist í málið á næstu dögum.
14.
Áætlaður kostnaður við framkvæmdir og viðhald.
Farið yfir drög að skjali þar sem framkvæmdir næstu ára eru taldar upp. Starfsmönnum falið að klára skjalið og senda inn til Hafnarsambands Íslands.
15.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Rætt um Graðaloftið og framtíð þess. Hafnarstjóri upplýsti um ástandsskoðun sem framkvæmd var í byrjun ársins og er ástand húsins talið mjög slæmt. Bæjarstjóri geri tillögu um að Graðaloftið verði fært undir eignarstjóð sveitarfélagsins og tekjur og gjöld vegna húsins fari þar undir. Hafnarstjórn samþykkir framlagða tillögu.Bryndís Hólmarsdóttir spurði um 50.þ.kr. gjald sem innheimt er að hverju strandveiðileyfi og rennur inní hafnarsjóð. Í hvað er þetta gjald notað?Sigurður upplýsti að það er hluti af tekjum hafnarstjóð og ekki merkt neinum sérstöku máli.