hafnarstjórn Hornafjarðar
172. fundur
12. mars 2015
kl.
16:00
-
17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Reynir Arnarson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Björn Ingi fór yfir vinnuferlið við gerð deiliskipulags og áætlaður er vinnufundur með skipulagsnefnd þann 27.mars.
Reynir Arnarson vakti máls á hvort dýpisviðmið innan hafnar verði sett á deiliskipulagsuppdrátt þegar hann verður lagður fram. Þessi dýpisviðmið eru til í gögnum hafnarinnar.
Reynir Arnarson vakti máls á hvort dýpisviðmið innan hafnar verði sett á deiliskipulagsuppdrátt þegar hann verður lagður fram. Þessi dýpisviðmið eru til í gögnum hafnarinnar.
2.
Landbrot á Suðurfjörum
Farið yfir tilboð í verkið. Hafnarstjórn sammála um að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.
3.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2015
Farið yfir gjaldskrá hafnarinnar. Hafnarstjórn samþykkir eftirtaldar breytingar á gjaldskrá.
Almennt raforkugjald hækkar úr 14 kr./kwst í 15 kr./kwst.
Einnig að innheimt verði 2.klst. fyrir útkall hafnarstarfsmanna utan hefðbundins vinnutíma.
Umræður voru um hvort nauðsynlegt væri að bæta við gjaldskrá kafla um vinnu vegna hreinsunar og mengunarstarfa.

4.
Óviðunandi dýpi vegna löndunar við Bræðslubryggju
Upplýst að brugðist hefur verið við þeim aðstæðum sem sköpuðust við bryggjuna. Dýpkunarskipið Dísa frá Björgun kom fjarlægði það sem þurfti.
5.
Viðhald á bryggjum - viðgerðir á þili
Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga á grundvelli verðkönnunar.
6.
Innsigling um Hornafjarðarós
Lokadrög að skýrslu um Grynnslin og innsiglinguna um Hornafjarðarós lögð fram til kynningar.
Hafnarstjórn hvetur til að skýrslan verði gefin út og send verði á þá sem málið varðar.
Hafnarstjórn hvetur til að skýrslan verði gefin út og send verði á þá sem málið varðar.
7.
Starfsmannamál Hornafjarðarhafnar 2014
Farið yfir starfsmannamál og þjónustu hafnarinnar.
8.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Rætt um aukafund 27.mars til að fara yfir tillögur að deiliskipulagi Hafnarinnar. Áætlaður fundartími er um kl.13:00.