hafnarstjórn Hornafjarðar
179. fundur
10. september 2015
kl.
16:00
-
19:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Reynir Arnarson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Vettvangsferð
Farið í siglingu út í Helli og viðhaldsframkvæmdir á vita skoðaðar. einnig rætt um rafmagn á austurfjörum. Sjóvarnarframkvæmdir á suðurfjörum skoðaðar af sjó.
Starfsmönnum falið að gera frétt um viðhaldsframkvæmdir í Hellisvita og sjóvarnarviðgerðir á Suðurfjörum
Starfsmönnum falið að gera frétt um viðhaldsframkvæmdir í Hellisvita og sjóvarnarviðgerðir á Suðurfjörum
2.
Deiliskipulag höfnin/Ósland
Hafnarstjórn fór yfir deiliskipulag og greinagerð með deiliskipulagstillögunni.
Hafnarstjórn lítur þannig á málið að Bátstangi endi við Ferjukletta. Svæðið sjávar- og norðanmegin við lóðir 7, 9, 11, og 13 við Ófeigstanga sé athafnasvæði en ekki gata. Gönguleið sem teiknuð er á þessu athafnasvæði geti ekki haft forgang. Þessu til stuðnings er á skipulagsuppdrætti nafnið Óslandsbryggja á þessum stað.

3.
Viðhaldsdýpkun 2015
Hafnarstjóri upplýsti að búið er að skrifa undir verksamning vegna viðhaldsdýpkunar 2015 til 2018 við Dýpkunarfélagið Trölla ehf. Framkvæmdir við dýpkun eiga að hefjast um mánaðmótin september október og vera lokið 10. desember 2015.
4.
Björgun á M/V Hauk
Farið fyir stöðu málsins og þau samskipti sem átt hafa sér stað fram að þessu. Búið er að ákveða fund með málsaðilum þann 18. september. Hafnarstjórn vonar að sanngjörn niðurstaða fáist í þetta mál sem fyrst.
5.
Flutningur á steypumöl frá Horni til Reyðarfjarðar
Farið var yfir innsend bréf.
Hafnarstjórn vísar í bókun undir 4. lið í fundargerðinni
Hafnarstjórn vísar í bókun undir 4. lið í fundargerðinni
6.
Umhverfisstefna Hornafjarðarhafnar
Farið yfir drög að verkáætlun frá Náttúrustofu Suðausturlands við gerð umhverfisstefnu fyrir Hornafjarðarhöfn. Fram kemur í áætluninni að vinna á að Bláfánavottun. Hafnarstjórn telur að ómögulegt sé fyrir Höfnina að uppfylla skilyrði við slíka vottun. Eitt skilyrðið er að mögulegt sé að sjá til botns (The water in the marina must be visually clean)í höfninni en út frá náttúrulegum aðstæðum er slíkt ómögulegt.
Hafnarstjórn er sammála um að vinna umhverfisstefnu og hún verði í framhaldinu feld inní stefnu hafnarinnar.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 verði afmarkaðir fjármunir í þessa vinnu.
Hafnarstjórn er sammála um að vinna umhverfisstefnu og hún verði í framhaldinu feld inní stefnu hafnarinnar.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 verði afmarkaðir fjármunir í þessa vinnu.
7.
Starfsmannamál Hornafjarðarhafnar 2014
Vignir J vék af fundi undir þessum lið.
Rætt um starfsmannamál.
Rætt um starfsmannamál.
8.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Rædd skýrsla sem lögð var fram á hafnafundi 28. ágúst 2015 í Hafnarfirði. Hafnarstjóri og Vignir Júlíusson fóru á þennan fund.
Vignir J. upplýsti um samskipti við Alexander hjá Köfunarþjónustunni vegna fyrirhugaðra viðgerðar á þili Mikleyjarbryggju og Bræðslubryggju. Starfsmönnum falið að kanna málið með áherslu á Bræðslubryggju.
Hafnarstjóri upplýsti að ekki hefur en tekist að fá verð frá öðrum aðila vegna rafmagnsmála á austurfjörum. Ekki eru margir á landinu sem hafa þekkingu til að útvega vindmyllur og sólarsellur eins og hugmyndir eru um að leysa rafmagnsmál á austurfjörum með. Hafnarstjórn samþykkir að fela hafnarstjóra ganga frá kaupum á vind og sólarbúnaði vegna Austurfjöru.