hafnarstjórn Hornafjarðar
185. fundur
26. apríl 2016
kl.
16:00
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Páll Guðmundsson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Sigurður Ægir Birgisson
1. varamaður
Ingólfur Ásgrímsson
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson
Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
Bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Bryndís B. kynnti vinnu að gerð umhverfisstefnu sveitarfélagsins í samvinnu við Umhverfisnefnd. Inn í þessa vinnu fléttast umhverfisstefna Hornafjarðarhafnar. Ekki eru til neinar ákveðnar reglur um gerð umhverfisstefnu fyrir hafnir en mælst til að hafnir vinni slíka stefnu. Nokkuð ljóst er að Bláfána verkefnið sem á við smábátahafnir gengur ekki á hafnir Hornafjarðarhafna sökum nálægðar smábátahafnar við höfn stóru skipanna. Sigurður Ægir spurði fyrir um hvort einhverjar áætlanir væru til hjá Hornafjarðarhöfnum vegna bráðamengunar í höfninni. Vignir sagði slíka áætlun ekki vera formlega til en ferlið þekkt sem unnið er eftir.
Hafnarstjórn telur jákvætt að vinna umhverfisstefnu hafnarinnar samhliða vinnu við umhverfisstefnu sveitarfélagsins. Umræður voru á síðasta fundi Hafnarsambandsins um mikilvægi þess að vinna umhverfisstefnu fyrir hafnir.

2.
Menningarstefna Hornafjarðar
Bryndís H. kynnti drög að menningarstefnu. Fundarmenn almennt ánægðir með framkomna stefnu en töldu hana þunga til yfirlestrar
3.
Umsókn um styrk fyrir Sjávarútvegsskóann 2016
Vignir kynnti erindið. Hafnarstjórn telur þetta verkefni vera mjög áhugvert og til þess fallið að kynna fjölbreytta atvinnumöguleika innan sjávarútvegsgeirans. Ingólfur Ásgrímsson benti á að fjöldi 14 ára nemenda í sveitarfélaginu er ekki mjög mikill hann taldi mikilvægt að bjóða þetta frá 13 til 16 ára ungmennum. Hafnarstjórn telur eðlilegt að þessi styrkbeiðini fari til meðferðar hjá bæjarráði og telur að sveitarfélagið í samvinnu við atvinnulífið á staðnum skoði möguleika á þátttöku.
4.
Ósk um yfirlýsingu hafnarstjónar v. hafnsögumanns
Vignir upplýsti að til að einstaklingur geti fengið skírteini hafnsögumaður þarf viðkomandi hafnarstjórn að mæla með umsækjanda.
Jóhannes Hjalti Danner hefur óskað eftir slíkri yfirlýsingu.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar lýsir hér með yfir að hún mælir með umsókn hans til skírteinis hafnsögumanns við Hornafjarðarhöfn.
Jóhannes Hjalti Danner hefur óskað eftir slíkri yfirlýsingu.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar lýsir hér með yfir að hún mælir með umsókn hans til skírteinis hafnsögumanns við Hornafjarðarhöfn.
5.
Löndunarkranar
Páll lagði til að löndunarkranar hafnarinnar yrðu færðir saman þannig að um það bil 15 metra væru á milli þeirra. rætt var um hvar mögulegt væri að staðsetja krana hafnarinnar til framtíðar. Fleiri úfærslur voru ræddar til að ná fram þeim markmiðum að minnka biðtíma eftir löndun. Hafnarstjórn felur forstöðumanni að koma með hugmynd að lausn mála á næsta fund hafnarstjórnar.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Bryndis upplýsti að hún fór á fund á Reyðarfirði sem Umhverfisstofnun boðaði til þar sem kynnt var verkefni sem snýr að viðbrögðum við bráðamengun. Umhverfisstofnun mun vinna drög að áætlun fyrir allar hafnir í landinu og senda til Hornafjarðarhafnar.
Sigurður Ægir spurði um ástand á Grynnslum og hvort hafa verið gerðar einhverjar mælingar. Vignir upplýsti að ástandið er skárra en síðasta vor en nauðsynlegt er að unnið verði að frekari rannsóknum og framkvæmdum í framhaldinu.