Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

186. fundur
24. maí 2016 kl. 16:00 - 16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir formaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Páll Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Samningur um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Málsnúmer 201603001
Leigusamningur við Litla Horn rennur út í dag, ef hann er ekki endurnýjaður framlengist hann til eins árs í senn og er uppsegjanlegur með sex mánaða fyrirvara.
Umræður sköpuðust um eignarhald á landsvæðinu, nefndarmenn kalla eftir að starfsmenn vinni að hnitsetningu á svæðinu svo það sé ljóst hvaða svæði er í eigu Hafnarinnar.
Starfsmanni falið að hafa samband við Litla Horn og vinna að gerð á nýjum samningi ef leigutaki hefur staðið við samninginn á leigutíma.
2.
Dýpi í smábátahöfn
Málsnúmer 201605082
Páll lýsti yfir áhyggjum sínum yfir að dýpi sé orðið lítið vestan í smábátahöfninni hann greindi frá að bátar hafa verið að taka niður þegar er stórstreymt.
Umræður sköpuðust um hvort hægt sé að fá dýpkunarskip til að leysa vandamálið.
Starfsmanni falið að kanna hvort hægt sé að fá dýpkunarskip og athuga með kostnað við verkið.