hafnarstjórn Hornafjarðar
187. fundur
28. júní 2016
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir
formaður
Páll Guðmundsson
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
1. varamaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Ingólfur Ásgrímsson
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson
Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Dýpi í smábátahöfn
Möguleikar við dýpkun smábátahafnar
Talað við Hagtak, Rósaberg og Vegagerðina vegna möguleika á að dýpka smábátahöfnina. Niðurstaðan er að ekki er mögulegt að losa efni úr höfninni annars staðar en við Stapaklett þannig að Trölli er líklega besti kosturinn. Hafnarstjórn leggur því til að við næstu reglulegu viðhaldsdýpkun hafnarinnar verði þetta svæði tekið og dýpkað og stefnt að því að hún fari fram fyrri part sumars. Næsta viðhaldsdýpkun fer fram sumarið 2017.
2.
Ósk um rannsóknarvinnu Hornafjarðarós
Skýrsla frá dönsku straumfræðistofnunni um að meta kosti og galla tiltekinna lausna vegna dýpisleysis í innsiglungu um Grynnslin.
Vignir upplýsti um samskipti við Vegagerðina vegna skoðunar dönsku straumfræðistofnunarinnar á málinu. Skýrsla með niðurstöðum lögð fram til kynningar. Vignir sagði frá að til stendur að straummæla Ósinn nú í sumar og tengist það áframhaldandi rannsóknum á Grynnslum.
3.
Framkvæmdir innan hafnar
Vignir fór yfir stöðu mála. Hafnarstjórn lýst vel á hugmyndir sem lagðar voru fram vegna Dengsabryggju og grjótvörn innan hafnar sunnan smábátahafnar.
Hafnarstjórn samþykkir að fara í verkið samhliða fráveituframkvæmdum á svæðinu og felur starfsmönnum að undirbúa málið.
Einnig var kannað með kostnað við að skipta um þekju á Vogabryggju. Hafnarstjórn óskar eftir að kannað verði hvort framkvæmdin er styrkhæf og sækja um ef svo reynist.
Hafnarstjórn samþykkir að fara í verkið samhliða fráveituframkvæmdum á svæðinu og felur starfsmönnum að undirbúa málið.
Einnig var kannað með kostnað við að skipta um þekju á Vogabryggju. Hafnarstjórn óskar eftir að kannað verði hvort framkvæmdin er styrkhæf og sækja um ef svo reynist.
4.
Löndunarkranar
Vignir upplýsti um stöðu mála og með hvaða hætti málið var leyst á yfirstandandi strandveiðitímabili. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna áfram að framtíðar fyrirkomulagi mála.