Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

189. fundur
28. september 2016 kl. 15:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Ægir Sigurðsson vara áheyrnarfulltrúi
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Grynnslin - kynning á rannsóknum
Málsnúmer 201609134
Sigurður fór yfir rannsóknir sem hafa verið gerðar á Grynnslunum, greindi frá að nauðsynlegt er að gera líkan til að mæla öldur, sannreyna og kvarða öldulíkan. Sandflutningareikningar til ákvörðunar á nettó flutningi yfir Grynnslin. Samtvinnað sandflutningalíkan með öldum, straumum.
Hafnarstjórn þakkar Sigurði fyrir erindið og leggur áherslu á að rannsókninni verði haldið áfram og gerð líkans til að mæla öldur og sandflutninga verði gert sem fyrst.
2.
Umhverfisstefna Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 201509028
Hafnarstjórn leggur til að haldin verði vinnufundur um umhverfistefnuna og framkvæmdaáætlun við fyrsta tækifæri.
3.
Framkvæmdir Hafnarinnar 2016
Málsnúmer 201512047
Frestað.
4.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2015
Málsnúmer 201501063
Farið yfir gjaldskrána, Vignir gerði grein fyrir að Umhverfisstofnun hefur lagt til að ekki verði gerðar breytingar á gjaldskrá um sorp og endurvinnslumóttöku fyrr en málið hefur verið tekið til umræðu á Hafnarsambandsþingi í október 2016.
Frestað.
5.
Samgönguáætlun
Málsnúmer 201609097
Lagt fram til kynningar.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Hafnarsambandsþing verður haldið á Ísafirði 13 og 14. október.
Lagt er til að fulltrúar hafnarstjórnar á þingið verða:
Bryndís Hólmarsdóttir, Sigurður Einar Sigurðsson, Reynir Arnarson og Vignir Júlíusson.