Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

193. fundur
28. febrúar 2017 kl. 16:00 - 17:07
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Páll V. Ólafsson 1. varamaður
Sigurður Ægir Birgisson 1. varamaður
Ingólfur Ásgrímsson Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Cruise Iceland 2017
Málsnúmer 201702016
Árdís fór yfir samskipti sýn við forsvarsmenn Cruise Iceland vegna aðildargjalda. Tekjumódel félagsins er á þann veg að allar hafnir greiða sama gjald óháð stærð eða fjölda skipa sem koma. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að undirbúa erindi fyrir aðalfund Cruise Iceland þar sem lagt verður til að tekjumódel félagsins verði endurskoðað. Markmið með endurskoðun yrði að þrepaskipta árgjaldi í samræmi við tekjur hafnanna af komu skipa til þeirra.
2.
Fudargerðir Hafnasamband sveitarfélaga 2017
Málsnúmer 201702072
fundargerðir nr.388 til 392 lagðar fram til kynningar.
3.
Vogarbryggja viðgerð/endurbætur
Málsnúmer 201702073
Vignir kynnti úttekt sem fór fram á Vogabryggju. Ástand bryggju er slæmt og þarfnast hún viðhalds. Áætlaður kostnaður í viðgerð eða endurbyggingu er 40 til 80 milljónir. Starfsmönnum falið að merkja bryggjuna með þungatakmörkunum sökum ástands hennar.
4.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2017
Málsnúmer 201701042
Farið yfir gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2017. Hafnarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni í lögformlegt ferli.
5.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Vignir fór yfir hugmynd um að hafnarstjóri og forstöðumaður hafnarinnar myndu fara á sýningu vegna mælinga og rannsókna á höfnum sýningin er í Southampton í byrjun apríl.
Hafnarstjórn samþykkir að hafnarstjóri og forstöðumaður hafnarinnar sæki sýninguna.