Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

194. fundur
29. mars 2017 kl. 16:00 - 17:02
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Páll Guðmundsson aðalmaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Ingólfur Ásgrímsson Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir og erindi Hafnasamband sveitarfélaga 2017
Málsnúmer 201702072
Vignir fór yfir erindi frá Hafnarsambandi Íslands um þátttöku hafnarinnar í gerð auglýsingaþáttar. framleiðsla og upptaka mun fara fram í sumar ef af verður. Umræður um gildi slíkra þátta fyrir höfnina.
Hafnarstjórn hafnar þátttöku í þessu verkefni.
Hafnarsamband Íslands er einni að bjóða námskeið fyrir aðildarhafnir um samskipti við fjölmiðla.
Hafnarstjórn teldi æskilegt að þetta námskeið yrði boðið í gegnum fjarfundarbúnað. Formaður hafnarsjórnar tekur að sér að kanna þann möguleika.
Að öðrum kosti telur hafnarstjórn æskilegt að forstöðumaður og formaður hafnarstjórnar sæki námskeiðið.
2.
Björn Lóðs slippur 2017
Málsnúmer 201703090
Vignir fór yfir tilboð sem fengin voru í slipptöku fyrir Björn Lóðs.
Fengin voru tilboð frá Stjörnublæstri ehf Seyðisfirði að upphæð 1.245.500.kr- og Skipalyftunni ehf. Vestmannaeyjum 1.175.000.kr-
Hafnarstjórn felur forstöðumanni vinna úr tilboðum.
Stefnt er að slipptöku eftir páska.
3.
Öryggismál Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 201703118
Páll Guðmundsson ræddi um stiga við löndunarkrana inn við sláturhús.
Hafnarstjórn felur starfsmönnum koma fyrir stiga og ljósi svo öryggi sjófarenda verði betra. Rætt um ástand á fríholtum á Krosseyjarbryggju starfsmönnum falið að gera tillögur að úrbótum.
4.
Grynnslin - kynning á rannsóknum
Málsnúmer 201609134
Reynir lagði fram fyrirspurn um stöðu rannsókna á Grynnslum. Vignir fór yfir hvað hefur verið í gangi vegna rannsókna á innsiglingu um Hornafjarðarós og Grynnslin.
Árið 2014 var lögð fram rannsóknaráætlun sem gerði ráð fyrir að rannsóknum á svæðinu yrði lokið á árinu 2017
Óskað var frekari upplýsinga um stöðuna. Tekið fyrir á næsta fundi Hafnarstjórnar.