hafnarstjórn Hornafjarðar
195. fundur
25. apríl 2017
kl.
16:00
-
17:19
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir
formaður
Sigurður Einar Sigurðsson
varaformaður
Páll Guðmundsson
aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir
aðalmaður
Ingólfur Ásgrímsson
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson
Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Cruise Iceland 2017
Farið yfir fundargerð Cruise Iceland frá 7. apríl 2017. Í fundargerð kemur fram að það er einróma skoðun stjórnar félagsins að ekki komi til greina að þrepaskipta árgjaldi í félaginu. Hafnarstjórn hefur álykta um að sanngjarnt væri að árgjald væri í einhverri tengingu við umfang hafna sem eru í félaginu. Hafnarstjórn telur að ef ekki komi til greina að ræða þrepaskiptingu árgjalds þá verði ákvörðun tekin um að segja sig úr félaginu á þessu ári.
2.
Fundargerðir og erindi Hafnasamband sveitarfélaga 2017
Lagt fram til kynningar.
3.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Vignir fór yfir mælingar sem fóru fram 10. apríl s.l. Staðan með hefðbundnum hætti.
4.
Viðhaldsdýpkun 2015 til 2018
Vignir fór yfir nýjustu mælingar innan hafnarinnar sem gerðar voru 19. apríl s.l.. Nú í sumar fer fram viðhaldsdýpkun innan Hafnarinnar og verður þá dælt upp um 50.000 rúmmetrum. Ljóst er að dýpið við smábátahöfnina er orðið grynnra en ásættanlegt er. Einnig hefur hlaðist á svæðið við Bræðslubryggju um 1 meter frá síðustu dælingu fyrir tveim árum. Hafnarstjórn telur nauðsynlegt er að dælt verði á þessum svæðum nú í sumar.
Starfsmönnum falið að vinna að málinu.
Starfsmönnum falið að vinna að málinu.
5.
Ocean Business Southamton 2017
Vignir og Björn Ingi fóru yfir ferð sem þeir fóru á vegum hafnarstjórnar til Southamton í Bretlandi. Margt áhugavert er varðar mælingar á hafsbotni og fjarstýrða mælitæki var á sýningunni. Einnig var þar aðili sem er að þróa og selja radarbúnað sem staðsettur er í landi. Slíkur búnaður mælir umhverfishreyfingar og gæti veit mikilvægar upplýsingar um dýpi á Grynnslum. Mögulegt er að skoða upplýsingar um þennan búnað á heimasíðu fyrirtækisins http://helzel.com/
6.
Löndunarkranar
Vignir fór yfir vinnu sem unnin hefur verið frá því málið var síðast rætt í Hafnarstjórn. Könnun forstöðumanns hafnarinnar á kostnaði við að útbúa aðstöðu við Álaugarey er um 35 milljónir. Höfnin á krana á Breiðdalsvík sem hefur verið í leigu undanfarin ár. Hafnarstjórn leggur til að kraninn á Breiðdalsvík verði fengin til baka og setja upp við hliðina á núverandi krana við sláturhúsið. Starfsmönnum falið að hefja undirbúning verksins og ræða við hafnarstjórn á Breiðdalsvík.