Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

203. fundur
23. janúar 2018 kl. 16:00 - 17:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Viðhaldsdýpkun 2017
Málsnúmer 201709556
Vignir fór yfir stöðu mála. Mælingar eftir dýpkun sýna að meira magni var dælt en verksamningur hvað á um. Unnið er að uppgjöri vegna dýpkunar.
Viðhengi
171208-hr.pdf
2.
Aðstöðusköpun við Trölla
Málsnúmer 201801082
Lögð fram tillaga eigenda Dýpkunarfélagsins Trölla ehf. um mögulega aðstöðusköpun á Ófeigstanga. Samkvæmt deiliskipulagi svæðisins er ekki gert ráð fyrir aðstöðu á umræddu svæði. Hafnarstjórn telur vænlegra að höfnin útbúi og eigi aðstöðu á umræddum stað fyrir aðila sem sjá um viðhaldsdýpkun hafnarinnar hverju sinni. Starfsmönnum falið að ræða við forsvarsmenn Dýpkunarfélagsins Trölla og skipulagsyfirvöld sveitarfélagsins um fyrirkomulag og mögulega framkvæmd.
Viðhengi
trölli.png
3.
Fundargerðir/erindi Hafnasambands
Málsnúmer 201709557
Farið yfir dreifibréf Samgöngustofu og Hafnarsambands Íslands þar eru stjórnendur hafna hvattir til að skoða öryggi hafna með reglulegu millibili, með það markmið að draga úr slysahættu við hafnir. Á fundi hafnarstjórnar nr.202 var rætt um öryggismál hafnarinnar og starfsmönnum falið að leita lausna. Til skoðunar er að hækka kannt á Vogabryggju þar sem umtalsverð umferð er um það svæði. Endanleg útfærsla liggur ekki fyrir. Hafnarstjórn leggur áherslu á að úrbótum ljúki sem fyrst.
Farið yfir fundargerð Hafnasambands Íslands nr. 399.
4.
Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn
Málsnúmer 201709394
Þar sem tvo fulltrúa vantar á fundinn verður afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar.