Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

204. fundur
27. febrúar 2018 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Páll Guðmundsson aðalmaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir 2. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn
Málsnúmer 201709394
á fundir 199 fól hafnarstjórn starfsmönnum að kynna hugmyndina fyrir notendum hafnarinnar og málið verði tekið fyrir á næsta fundi. Póstur hefur verið sendur á notendur hafnarinnar og fyrirtæki í hafnsækinni starfssemi á svæðinu. Tvö svör bárust við þessum fyrirspurnum frá Skinney Þinganes ehf og Ajatel ehf. Einnig var óskað eftir upplýsingum frá Hafnarsambandi Íslands og Faxaflóahöfnum vegna hugmyndanna.
Hafnarstjórn fjallaði um hugmyndina
Hafnarstjórn er sammála um að hugmyndin er allarar athygli verð og að mörgu leyti framsækin.
Það er hlutverk hafnarstjórnar að hafa framtíð og þróun hafnarinnar að meginmarkmiði við skoðun á hugmyndum sem þessum. Það er skoðun hafnarstjórnar eftir að hafa farið ýtarlega yfir málið, út frá þessum sjónarmiðum að landsvæði hafnarinnar sé að það skornum skammti að ekki sé forsvaranlegt að heimila hótelbyggingu á þessu svæði. Umrætt svæði er eitt af fáum, sem möguleiki væri á að útbúa lóð fyrir starfsemi sem þarfnast beins aðgangs að bryggjukanti.
2.
Lóðarumsókn: Miðós 6 og 8
Málsnúmer 201801102
Bæjarráð á fundi nr. 845 er óskað umsagnar hafnarstjórnar þar sem um er ræða lóðir á hafnarsvæði.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við úthlutun þessara lóða.
Hafnarstjórn vill þó taka fram að samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir byggingum á þessum lóðum og vill að gerður verði sambærilegur fyrirvari við úthlutun þessara lóða og gerður hefur verið um aðrar lóðir á svæðinu.
3.
Fundargerðir/erindi Hafnasambands
Málsnúmer 201709557
Fundargerð nr. 400 lögð fram til kynningar og tilboð vegna sjónvarpsþátta.
Fundargerð 400 lögð fram til kynningar.
Ákveðið að hafna þátttöku í sjónvarpsþáttagerð að þessu sinni.
Lagt fram til kynningar erindi um endurskoðun laga um uppboðsmarkaði sjávarafla.