Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

206. fundur
24. apríl 2018 kl. 16:00 - 18:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Páll Guðmundsson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Öryggismál Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 201703118
Hafnarstjórn fór í vettvangsferð um höfnina
Hafnarstjórn telur almennt ástand öryggismála við höfnina gott.
Hafnarstjórn bendir þó á að huga þarf að ýmsu viðhaldi.
Ræddar útfærslur á hækkun bryggjukanta.
2.
Reglugerð: olíumengun frá starfsemi á landi 884/2017
Málsnúmer 201804012
Lagt fram til kynningar.
Starfsmönnum falið að fylgja erindinu eftir.
3.
Fiskeldisstefna: drög sjávarútvegssveitarfélaga
Málsnúmer 201804008
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga gangast fyrir opnum fundi um fiskeldisstefnu samtakanna föstudaginn 27. apríl nk. í Íslenska sjávarklasanum að Grandagarði 16, Reykjavík og hefst fundurinn kl. 13:00.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fundargerðir erindi Hafnasambands 2018
5.
Hafnsögumenn
Málsnúmer 201804092
Hafnarstjórn mælir með að Þröstur Jóhannsson fái réttindi hafnsögumanns.
Einnig að Vignir Júlíusson fái endurnýjun réttinda til hafnsögumanns.