Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

207. fundur
24. maí 2018 kl. 16:00 - 17:06
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Bryndís Hólmarsdóttir formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Páll Guðmundsson aðalmaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Björn Ingi Jónsson Hafnastjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Cruise Iceland 2018
Málsnúmer 201805080
Farið yfir fundargerð Cruise Iceland.
Farið yfir komur skemmtiferðaskipa sumarið 2017. Voru fjórar komur skemmtiferðarskipa til Hornafjarðar og nú er von á þremur komum í sumar.
Í fundargerð félagsins segir að hagnaður ársins hafi verið verulegur engu að síður er lagt til og samþykkt að hækka árgjald úr 250 þ.kr. í 295 þ.kr. Hafnarstjórn telur að minni hafnir í landinu verði að fara að ræða saman um aðild sína að félaginu.
2.
Fundargerðir erindi Hafnasambands 2018
Málsnúmer 201804009
Farið yfir drög að samstarfsyfirlýsingu um framkvæmd viktarmála milli Hafnarsambands Íslands og Fiskistofu. Yfirlýsingin gerir m.a. ráð fyrir að Fiskistofu verði heimill aðgangur að eftirlitsmyndavélakerfum hafnanna. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að fylgjast með framgangi málsins.
Farið yfir fundargerðir stjórnar Hafnarsambands Íslands nr. 402 og 403