Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

208. fundur
21. júní 2018 kl. 16:00 - 17:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Páll Guðmundsson 1. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri og staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá
1.
Sveitarstjórnarkosnignar 2018 kynning og kjörbréf
Málsnúmer 201806038
Ólöf fór yfir kynningu á starfsemi sveitarfélagsins, þar á meðal samþykktir, fundarsköp og siðareglur kjörinna fulltrúa.
2.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2018
Málsnúmer 201710069
Lagt fram til kynningar.
3.
Björn Lóð : viðhald
Málsnúmer 201806057
Forstöðumaður Hornafjarðarhafnar fór yfir stöðuna varðandi viðhald á Birni Lóðs. Starfsmönnum falið að afla frekari gagna.
4.
Framkvæmdir innan hafnar
Málsnúmer 201606069
Farið yfir framkvæmdir innan hafnar. Framkvæmdir eru á áætlun. Grjóthleðsla í Hvammskrók er búin og landveggur kominn við Vogarbryggju. Viðgerð og endurnýjun á Miklagarðsbryggju og Vogarbryggju eru á dagskrá. Óska þarf eftir fundi með Vegagerðinni í haust varðandi rannsóknarniðurstöður á Grynnslunum og fleiri mál er varða höfnina. Starfsmönnum falið að óska eftir fundi með Vegagerðinni í haust.
5.
Radar Helzel og Helmholz
Málsnúmer 201709555
Vignir fór yfir stöðu tilraunaverkefnisins. Ölduradarinn er kominn í notkun og er farinn að skila gögnum um ölduhæð og strauma út á Grynnslum.
6.
Fundargerðir erindi Hafnasambands 2018
Málsnúmer 201804009
Lagt fram til kynningar.