Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

209. fundur
25. september 2018 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Ásgeir Gunnarsson 1. varamaður
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Aðstöðusköpun við Trölla
Málsnúmer 201801082
Sama mál og áður er afgreitt, en þeir eru að óska eftir að snúa prammanum aðeins
Hafnarstjórn heimilar breytingu samkvæmt þeim óskum og teikningum sem fyrir liggja.
2.
Björn Lóðs: viðhald
Málsnúmer 201806057
Þurfum að taka afstöðu til hvaða leið verður valin í sambandi við vélaskipti
Hafnarstjórn leggur til að viðhald á Birni Lóðs fari inn í fjárhagsáætlunargerð.
3.
Löndunarkranar
Málsnúmer 201709359
Til kynningarFjarðabyggð er tekin við höfninni á Breiðdalsvík og ætlar að skila krananum
Lagt fram til kynningar. Starfsmönnum falið að ganga frá skilum á krananum.
4.
Fundargerðir erindi Hafnasambands 2018
Málsnúmer 201804009
Hafnarstjórn þarf að velja fulltrúa á Hafnasambandsþingið
Fundargerð lagðar til kynningar. Lagt til að Hafnarstjóri, forstöðumaður hafnarinnar og tveir stjórnarmenn fari á Hafnarsambandsþing 2018. Nöfn þingfulltrúa þurfa að berast starfsmanni fyrir 12. október.
5.
Heimavigtunarleyfi SÞ
Málsnúmer 201809066
Skinney Þinganes missir heimavigtunarleyfi í 8 vikur og gera þurfti samning við höfnina um vigtun.
Lagt fram til kynningar.