hafnarstjórn Hornafjarðar
210. fundur
23. október 2018
kl.
17:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Arna Ósk Harðardóttir
varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson
1. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Samgönguáætlun 2019_2023
Farið yfir samgönguáætlun og þær áætlanir er snúa að framkvæmdum við höfnina. Hafnarstjórn lýsir ánægju yfir því að það skuli vera komið fjármagn í framkvæmdir á Grynnslunum. Hafnarstjórn stefnir að fundi með Vegargerðinni í lok október.
2.
Stefna í hafnarmálum 2014-2019
Núgildandi stefna Hornafjarðarhafnar gildir til ársins 2019. Þörf er á endurskoðun, lagt til að hefja þá vinnu snemma á næsta ári.
3.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2017
Farið yfir gjaldskrá Hornafjarðarhafnar. Starfsmönnum falið að uppfæra gjaldskrá miðað við verðlagsbreytingar og leggja fyrir næsta fund.