Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

212. fundur
19. desember 2018 kl. 17:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson 1. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Björn Lóðs: viðhald
Málsnúmer 201806057
Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins var samþykkt í bæjarstjórn 13. desember þar sem gert er ráð fyrir fjármagni vegna viðhalds á Birni Lóðs. Hafnarstjórn leggur til að haldið verði áfram við verkið og óskað verði eftir tilboðum í samræmi við innkaupareglur sveitarfélagsins. Starfsmönnum falið að fylgja málinu eftir.
2.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2019
Málsnúmer 201709558
Hafnastjórn samþykkir framlagða gjaldskrá með smávægilegum breytingum á orðalagi.
3.
Áætlun hafnaryfirvalda um móttöku úrgangs frá skipum
Málsnúmer 201806088
Lögð fram áætlun hafnaryfirvalda um móttöku úrgangs frá skipum í samræmi við reglugerð. Áætlunin er samþykkt samhljóða.
4.
Cruise Iceland 2018
Málsnúmer 201805080
Hafnarstjórn samþykkir að Hornafjarðarhöfn segi upp aðild sinni að Cruise Iceland fyrir næstkomandi áramót.
5.
Skipsstrand: Saltskip
Málsnúmer 201812047
Staðan
Vignir gerði grein fyrir strandi M/V Amber og skýrslugerð varðandi það.
6.
Heimavigtunarleyfi SÞ
Málsnúmer 201809066
Vignir fór yfir stöðu mála.
7.
Viðhaldsdýpkun 2019
Málsnúmer 201812073
Hafnarstjórn vísar erindi til umsagnar hjá Umhverfisnefnd og Skipulagsnefnd sveitarfélagsins.