hafnarstjórn Hornafjarðar
216. fundur
23. apríl 2019
kl.
17:00
-
18:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Arna Ósk Harðardóttir
varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Páll Guðmundsson
2. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Björn Lóðs: viðhald
Samningur um viðgerð á Birni Lóðs lagður fram til kynningar.
2.
Radar Helzel og Helmholz
Sagt frá tilraunaverkefni á dýptarmælingum með radar sem í gangi hefur verið síðan í júní 2018. Verkefninu er ekki lokið og von er á þeirra fulltrúa til Hafnar í maí næstkomandi.
3.
Umbætur innan Hornafjarðarhafnar
Erindi frá Hrollaugi, félagi smábátaeiganda Hornafjarðar lagt fram. Starfsmönnum falið að skoða þau mál er tilgreind eru og kynna fyrir Hafnarstjórn á næsta fundi. Olíudælur hafa m.a. verið til vandræða og finna þarf varanlega lausn á fyrirkomulagi þeirra.
Hafnarstjórn mælist til þess að erindi sem til hennar berist séu undirrituð og dagsett.
Fyrirhugað að Hafnarstjórn fari í vettvangsferð á hafnarsvæðið í upphafi næsta fundar.
Hafnarstjórn mælist til þess að erindi sem til hennar berist séu undirrituð og dagsett.
Fyrirhugað að Hafnarstjórn fari í vettvangsferð á hafnarsvæðið í upphafi næsta fundar.
4.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Lagt fram til kynningar meistaraverkefni unnið í samstarfi við Vegagerðina og Hornafjarðarhöfn á grynnslunum. Hægt er að kynna sér meistaraverkefnið undir þessari fundargerð.
Einnig lagt fram til kynningar minnisblað tekið saman að beiðni Sveitastjórna- og samgönguráðuneytisins, unnið af Vegagerðinni og forstöðumanni Hornafjarðarhafnar sem fjallar um grynnslin.
Einnig lagt fram til kynningar minnisblað tekið saman að beiðni Sveitastjórna- og samgönguráðuneytisins, unnið af Vegagerðinni og forstöðumanni Hornafjarðarhafnar sem fjallar um grynnslin.
5.
Fundargerðir erindi Hafnasambands
Í fundargerð nr. 412 hjá hafnarsambandinu er fjallað um málefni hafna hjá Vegagerðinni. Hafnarstjórn tekur undir bókun hafnasambandsins þar sem fulltrúar þess lögðu áherslu á mikilvægi þess að rannsóknarþátturinn, frumdragavinna og rannsóknir m.a. á öldufari verði áfram hjá Vegagerðinni. Innan Vegagerðarinnar eru fyrirhugaðar töluverðar skipulagsbreytingar sem ekki er búið að útfæra endanlega en þó er ákveðið að leggja siglingasvið niður í núverandi mynd og færa það undir mannvirkjasvið.