Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

220. fundur
23. september 2019 kl. 17:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson 1. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Björn Lóðs: viðhald
Málsnúmer 201806057
Vignir fór yfir framgöngu mála varðandi viðgerð á Birni Lóðs. Allt gengur samkvæmt áætlun.
2.
Viðhaldsdýpkun 2019
Málsnúmer 201812073
Starfsmönnum falið að klára málið í samræmi við bókun síðasta fundar.
3.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2020
Málsnúmer 201909052
Farið yfir rekstrarstöðu Hafnarinnar fyrstu 7 mánuði ársins. Tekjustreymi er undir áætlun eins og við mátti búast. Gæta þarf aðhalds við fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2020.
4.
Olíubryggjur
Málsnúmer 201909056
Olíufélögin hafa óskað eftir því að selja Hornafjarðarhöfn olíubryggjurnar og leigja aðstöðu í staðinn. Nauðsynlegt er að bæta aðstöðuna. Hafnarstjórn óskar eftir því að fá upplýsingar um rekstrarkostnað af breyttu fyrirkomulagi.
5.
Fundargerðir erindi Hafnasambands
Málsnúmer 201804009
Lagt fram til kynningar.