Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

222. fundur
9. desember 2019 kl. 17:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Ósk um rafmagn á smábátabryggjurnar
Málsnúmer 201912001
Hafnarstjórn þakkar fyrir erindið. Starfsmönnum falið að kanna stöðu á rafmagnsmálum við smábátabryggjurnar ásamt því að kanna möguleika á endurnýjun kerfisins.
2.
Fundur með Vegamálastjóra
Málsnúmer 201912037
Bæjarstjóri og formaður Hafnarstjórnar fóru til fundar með Vegagerðinni til að ræða fjármögnun sandfangara við Einholtskletta. Fjármögnun er samkvæmt samgönguáætlun 60% úr ríkissjóði og 40% frá sveitarfélagi þar sem framkvæmdin er skilgreind sem nýframkvæmd úr hafnabótarsjóði. Farið er fram á að fjármögnunin verði endurskoðuð og fjármögnuð líkt og varnargarðurinn á Suðurfjörum. Niðurstaða fundarins var á þá leið að Vegagerðin mun fara yfir málið í heild sinni.
3.
Viðhaldsdýpkun 2019
Málsnúmer 201812073
Það mun ekki nást að dýpka höfnina fyrir áramót. Hafnarstjórn óskar eftir nýjum dýptar mælingum og í kjölfarið þarf að taka ákvörðun um framhaldið.
4.
Stefna Hornafjarðarhafnar 2020-2025
Málsnúmer 201912038
Lagt til að hefja vinnu við nýja stefnumótun á nýju ári.