Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

223. fundur
27. janúar 2020 kl. 17:00 - 17:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson 1. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Stefna Hornafjarðarhafnar 2020-2025
Málsnúmer 201912038
Starfsmönnum falið að uppfæra gögnin í stefnunni. Sveitarfélagið er að hefja vinnu við heildarstefnumótun sem verður samþykkt í vor sem rétt er að hafa til viðmiðunar við endurskoðun á stefnu Hornafjarðarhafnar.
2.
Framkvæmdaleyfi - Varnargarður út í Einholtskletta
Málsnúmer 201911074
Bæjarstjórn hefur afgreitt framkvæmdaleyfi og breytingu á aðalskipulagi. Breytingin er í kynningarferli. Stefnt er að því að Vegagerðin auglýsi útboð í febrúar.
3.
Fundargerðir erindi Hafnasambands
Málsnúmer 201804009
Lagt fram til kynningar.