Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

226. fundur
27. apríl 2020 kl. 17:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson 1. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Viðhaldsdýpkun 2019
Málsnúmer 201812073
Dýpkunarfélagið Trölli stefnir að því að framkvæma viðhaldsdýpkun í júní í samstarfi við Vegagerðina. Hafnarstjórn ítrekar að staðið verði við dýpkun í júní.
2.
Framkvæmdaleyfi - Varnargarður út í Einholtskletta
Málsnúmer 201911074
Vegagerðin hefur opnað tilboð í verkið "Garður út í Einholtskletta 2020". Eftirfarandi tilboð bárust í verkið:
JG vélar ehf. 178.639.850,- 90 %
Ístak ehf. 298.986.850,- 150 %
Kostnaðaráætlun hönnuða 198.764.980.
Hafnarstjórn leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, JG vélar ehf.
3.
Fundargerðir Hafnasambands
Málsnúmer 202003067
Lagt fram til kynningar.