Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

230. fundur
28. september 2020 kl. 16:00 - 17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson 1. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Málsnúmer 201903117
Heimsmarkmiðin lögð fram til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
2.
Skipurit 2020
Málsnúmer 202001015
Bæjarstjórn hefur samþykkt nýtt skipurit. Það er lagt fram hér til kynningar.
Farið yfir samþykktar breytingar á skipuriti og þýðingu þeirra á fyrirkomulag Hornafjarðarhafnar.
3.
Málefni Hornafjarðarhafnar: Erindi til ráðuneytis
Málsnúmer 202008073
Meðfylgjandi er svar við erindi sveitarfélagsins.
Svar Vegargerðarinnar við erindi Hornafjarðarhafnar kynnt. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að óska eftir áætlunum um framhald rannsókna á Grynnslunum að loknum framkvæmdum við sandfangarann.
4.
Sandfangari í Einholtskletta
Málsnúmer 202008035
Farið yfir stöðu framkvæmda við sandfangara við Einholtskletta
Staða framkvæmda kynnt en vel miðar.
5.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2017
Málsnúmer 201709558
Starfsmönnum falið að yfirfara gjaldskrá Hornafjarðarhafnar og leggja fram tillögur fyrir næsta fund.
6.
Áningarstaður við smábátahöfn
Málsnúmer 202009073
Hafnarstjórn fagnar þeim hugmyndum sem eru lagðar fram en óskar þess að fá að fylgjast með málinu. Mikilvægt er að áfangastaðurinn hafi ekki neikvæð áhrif á starfsemi hafnarinnar. Hafnarstjórn óskar eftir því að fá málið til umfjöllunar þegar hönnun og framkvæmdaáætlun liggur fyrir.
7.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Málsnúmer 201709160
Dýptarmælingar lagðar fram til kynningar.
8.
Fundargerðir Hafnasambands
Málsnúmer 202003067
Lagt fram til kynningar.