hafnarstjórn Hornafjarðar
233. fundur
25. janúar 2021
kl.
18:00
-
19:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Arna Ósk Harðardóttir
varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Sigurður Ólafsson
aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fyrirspurn um efnistöku
Vísað til hafnarstjórnar frá umhverfis- og skipulagsnefnd. Óskað eftir heimild til efnistöku úr Hornafjarðarósi, til þess að hefja efnistöku á svæðinu þarf að gera breytingu á aðalskipulagi og finna þarf hentugan stað fyrir efnisvinnslu.
Kynntar hugmyndir GYG Minerals um efnistöku. Hafnarstjórn er jákvæð fyrir efnistöku úr siglingarleiðinni og mun fylgjast með þróun verkefnisins.
2.
Sandfangari í Einholtskletta
Lokauppgjör vegna framkvæmda við sandfangarann í Einholtsklettum kynnt. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við uppgjörið.
3.
Viðhalsdýpkun 2021
Bjóða þarf út viðhaldsdýpkun innan hafnar á árinu ásamt því að kortleggja mögulega losunarstaði.
Hafnarstjórn óskar eftir samstarfi við umhverfis- og skipulagsnefnd um nýja losunarstaði.
4.
Umsókn um lóð - Ófeigstangi 13
Hafnarstjórn hefur óskað eftir því við bæjarráð að deiliskipulag í Óslandi verði endurskoðað. Á meðan endurskoðun er ekki lokið leggur Hafnarstjórn til að lóðunum við Ófeigstanga 11 og 13 verði ekki úthlutað.
5.
Fundargerðir Hafnasambands
Lagt fram til kynningar.