Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

236. fundur
28. apríl 2021 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Björgvin Freyr Larsson Fulltrúi ungmennaráðs
Ásgeir Gunnarsson 1. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Innsiglingin um Hornafjarðarós
Málsnúmer 201709160
Nýjasta mæling lögð fram.
Vignir kynnti nýjustu dýptarmælingar fyrir utan Hornafjarðarós. Mælingarnar eru í samræmi við væntingar. Litlar breytingar sjáanlegar við Einholtsgarðinn enn sem komið er.
2.
Viðhalsdýpkun 2021
Málsnúmer 202101086
Málið var til umfjöllunar í hafnarstjórn í janúar sl. og var vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. Starfsmanni var falið að kortleggja mögulega losunarstaði í samstarfi við hafnarstjórn skv. bókun nefndarinnar.
Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs ræddi mögulega losunarstaði í tengslum við viðhaldsdýpkun 2022. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
3.
Reglur um gáma, báta og aðra lausafjármuni í sveitarfélaginu Hornafjörður
Málsnúmer 202102033
Drög að reglum um gáma, báta og aðra lausafjármuni í Sveitarfélaginu Hornafirði. Markmið reglna er að tryggja að öllum öryggis- og hollustukröfum sem tilheyra lausafjármunum sé uppfyllt, að brunavarnir séu fullnægjandi, og að lausafjármunir skapi ekki óþægindi fyrir nágranna. Einnig að taka afstöðu til lausafjármuna á einstökum landnotkunarsvæðum innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Málinu er vísað til umsagnar hafnarstjórnar úr umhverfis- og skipulagsnefnd.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við reglurnar.
4.
Hraðhleðslustöð á Höfn
Málsnúmer 202102007
Óskað hefur verið eftir lóð undir hraðhleðslustöð á Höfn á bílastæði við höfnina.
Hafnarstjórn leggst gegn núverandi tillögu þar sem gengið er á bílastæði sjómanna nema fundinn verði önnur jafngóð staðsetning fyrir bílastæði sjómanna.
5.
Breyting á aðalskipulagi - Heppuvegur 6
Málsnúmer 202103129
Óskað hefur verið eftir breytingu á aðalskipulagi við Heppuveg 6. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir umsögn hafnarstjórnar um málið.
Hafnarstjórn leggur til að settir verði skilmálar inn í aðalskipulagið um að aðkoma gesta og starfsfólks að Heppuvegi 6 verði ekki frá hafnarsvæðinu sunnan við húsið.
5.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Málsnúmer 202104021
Forsendur vegna breytinga á deiliskipulagi Hornafjarðarhafnar við Ósland.
Farið yfir minnisblað vegna breytinga á núgildandi deiliskipulagi í Óslandi og rætt um næstu skref í vinnunni. Boðað verður til vinnufundar fyrir sumarfrí.
7.
Hornafjarðarós - Leyfi til efnistöku mótmælt
Málsnúmer 202103088
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsókn um lóð við höfnina
Málsnúmer 202104110
Sótt er um úthlutun eða leigu á lóð við Ófeigstanga 11-13 og einnig við Álaugareyjarbryggju vegna dælingu á efni úr Hornafjarðarós.
Hafnarstjórn getur ekki mælt með úthlutun á lóðum við Ófeigstanga 11-13 á meðan unnið er að deiliskipulagi í Óslandi. Varðandi lóð við Álaugareyjarbryggju telur hafnarstjórn ekki æskilegt að vinna uppdælingu innan hafnarinnar.
Hafnarstjórn bendir á að hægt er að semja um aðstöðu fyrir efni í tengslum við út- og uppskipun.