hafnarstjórn Hornafjarðar
237. fundur
31. maí 2021
kl.
16:00
-
18:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Arna Ósk Harðardóttir
varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson
1. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Ráðgjafafyrirtækið Alta kemur inn á fund Hafnarstjórnar til að kynna fyrstu skref í endurskoðun deiliskipulags á Hafnarsvæðinu í Óslandi.
Farið yfir helstu forsendur vegna endurskoðunar deiliskipulags í Óslandi með ráðgjöfum frá Alta.
2.
Fyrirspurn - Malbikað bílastæði við smábátahöfn
Hafnarstjórn þakkar fyrir erindið. Hafnarstjórn óskar eftir kostnaðargreiningu á framkvæmd við athafnasvæði smábátahafnar og leggur áherslu á að svæðið verði malbikað í haust.
3.
Dæling í Hornafjarðarós - auglýsing
Lögð fram tillaga að auglýsingu vegna dælingar úr Hornafjarðarós.
Hafnarstjórn samþykkir að auglýsa efnistöku úr Hornafjarðarósi í samræmi við nýorðna breytingu á aðalskipulagi.
4.
Uppsögn á samningi um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Litlahorn ehf. Kt.5108720299 hefur sagt upp samningu um hafnaraðstöðu á Austurfjöru. Jafnframt óskar fyrirtækið eftir endurskoðun á samstarfi umhafnaraðstöðuna sem tekur mið af núverandi aðstæðum.
Uppsögn samnings um hafnaraðstöðu á Austurfjörum dagsett 24.5.2021 er móttekin. Hafnarstjóra er falið að bjóða fulltrúa Litlahorns ehf. á næsta fund hafnarstjórnar.
5.
Geymslumál hafnarinnar
Hafnarstjórn upplýst um stöðu mála varðandi geymslur.