Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

239. fundur
23. ágúst 2021 kl. 16:00 - 16:50
Teams Meating
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Grynnslin - næstu skref
Málsnúmer 202102083
Vegagerðin hefur enn ekki dýptarmælt en von er á þeim á næstunni.
Óskað hefur verið eftir fundi með Vegagerðinni og verður hann seinnipart vikunnar á fimmtudag og föstudag nk.
2.
Uppsögn á samningi um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Málsnúmer 202105101
Farið yfir gögn sem lágu fyrir fundinum.
3.
Fyrirspurn - Malbikað bílastæði við smábátahöfn
Málsnúmer 202105087
Upplýst um afgreiðslu bæjarráðs og tímasetningu framkvæmda.
Áætlaður kostnaður við malbikun á bílastæðinu er um 15 m.kr. Malbikunarflokkur er væntanlegur í september nk. Hafnarstjórn leggur áherslu á að það verði malbikað og gengið verði vel frá svæðinu samhliða og hugað verði að mengunarbúnaði.
4.
Hafnarfundur 2021
Málsnúmer 202108068
Lagt til að hafnarstjóri og forstöðumaður hafnarinnar fari á fundinn og Reynir verði skráður til vara.