Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

240. fundur
27. september 2021 kl. 16:00 - 17:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Páll Guðmundsson 2. varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir Hafnasambandsins
Málsnúmer 202003067
Lagt fram til kynningar.
2.
Hafnarfundur 2021
Málsnúmer 202108068
Starfsmenn kynntu helstu málefni sem rædd voru á Hafnarfundi 2021. Hér má skjá dagskrá fundarins, nálgast upptöku og erindi.https://hafnasamband.is/fundir-og-radstefnur/hafnafundur-2021/
3.
Grynnslin - næstu skref
Málsnúmer 202102083
Tveir fundir hafa verið haldnir með Vegagerðinni frá síðasta fundi hafnarstjórnar. Niðurstöður fundanna eru á þá leið að Vegagerðin óskaði eftir umsókn frá Hornafjarðarhöfn um að dýpka Grynnslin á næsta ári.
Starfsmenn hafa nú sent inn umsókn. Ekki liggur endanlega fyrir hvernig kostnaðarskipting framkvæmdanna verður. Vegagerðin er jákvæð fyrir að dýpka á næsta ári, unnið er áfram að málinu.
4.
Hönnun: Mikligarður 2020 -2021
Málsnúmer 202003108
Fyrir fundinum liggur tillaga að breytingum á skipulagi í Miklagarði samhliða endurbótum. Tillagan hefur verið samþykkt í bæjarráði og fengið kynningu í Atvinnu- og menningarmálanefnd.
Hafnarstjórn bendir á að gera má ráð fyrir vatnssöfnun inn í húsið og óskar jafnframt eftir því að fá að fylgjast hönnunarvinnunni.
5.
Hraðhleðslustöð á Höfn
Málsnúmer 202102007
Hafnarstjórn leggur áherslu á að merkt verði stæði fyrir sjómenn nú þegar framkvæmdir eru hafnar við ný hleðslustæði fyrir Teslu.
Hafnarstjórn beinir því einnig til umhverfis- og skipulagsnefndar að huga að bílastæðamálum við höfnina til að koma bifreiðum af bryggjum.