Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

241. fundur
25. október 2021 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson 1. varamaður
Maríus Máni Jónsson Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Grynnslin - erindi frá Skinney Þinganes
Málsnúmer 202109091
Sigurður Ægir víkur af fundi undir þessum lið.
Hafnarstjóri fór yfir efni bréfsins og upplýsti um stöðu mála. Vegagerðin hefur verið upplýst um málið og er með það til skoðunar. Von er á starfsmanni Vegagerðarinnar til Hafnar í þessari viku. Hafnarstjórn er sammála um að hraða úrbótum sé þess nokkur kostur.
2.
Grynnslin - næstu skref
Málsnúmer 202102083
Vegagerðin leggur til að staðsetja nýtt öldumælidufl innan skerja til að fylgjast betur með ölduhæð í samstarfi við starfsmenn Hornafjarðarhafnar. Hafnarstjórn lýsir ánægju sinni yfir því og samþykkir þátttöku hafnarinnar.
3.
Fjáhagsáætlun 2022
Málsnúmer 202110073
Fjárhags- og framkvæmdaáætlun lögð fram til kynningar.
4.
Viðhaldsdæling 2021
Málsnúmer 202110075
Líklegast þarf að dýpka um 20-30.000 m3 innan hafnar fyrir komandi loðnuvertíð. Ekki er búið að semja við verktaka en von er á Vegagerðarmönnum í vikunni. Það liggur þó fyrir þátttaka Vegargerðarinnar í kostnaði við dýpkunina.
Von er á starfsmanni Vegagerðarinnar í vikunni til undirbúnings. Tímaramminn vegna loðnuvertíðar er stuttur og því telur hafnarstjórn nauðsynlegt að byrjað sé að dýpka sem fyrst.