Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

242. fundur
22. nóvember 2021 kl. 16:00 - 17:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Arna Ósk Harðardóttir varaformaður
Sigurður Ægir Birgisson aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir Hafnasambandsins
Málsnúmer 202003067
Lagt fram til kynningar.
2.
Höfnin - Athugasemd vegna Dýpkun
Málsnúmer 202111048
Bréf frá Ómar Antonssyni þar sem hann gerir athugasemd við dælingu innan hafnar í Hornafjarðarhöfn. Í bréfinu koma fram ásakanir á hendur sveitarfélagsins þess efnis að dæling úr höfninni sé að valda efnissöfnun við viðlegukant á Austurfjörutanga sérstaklega eftir síðustu dýpkun innan hafnar á síðasta ári.
Hafnarstjórn vísar ásökunum á bug, engar sannanir eru fyrir því að efni sem dælt er upp innan hafnar safnist saman við viðlegukant á Austurfjörum. Mikið magn efnis sé að jafnaði á hreyfingu innan fjarðar og ekkert sem bendir til þess að dælingin hafi áhrif þar á.
Hafnarstjórn leggur jafnframt áherslu að skilgreint verði framtíðarsvæði sem tekur við uppdælingarefni úr höfninni. Allar dælingar innan hafnar hafa uppfyllt lagaskilyrði með tilskildum leyfum.
3.
Uppsögn á samningi um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Málsnúmer 202105101
Drög að nýjum samningi bárust frá Litlahorni ehf. þann 22.11.2021. Drögin lögð fram til kynningar.
4.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Málsnúmer 202104021
Lýsing vegna endurskoðunar deiliskipulags í Óslandi.
Hafnarstjórn samþykkir lýsinguna og vísar henni til Umhverfis- og skipulagsnefndar.
5.
Viðhalsdýpkun 2021
Málsnúmer 202101086
Vignir fer yfir stöðu mála vegna dýpkunar innan hafnar.
Samið var við dýpkunarfélagið Trölla ehf. Dæling er nú hafin og gengur vel.