Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

248. fundur
29. ágúst 2022 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Ögmundur Jón Guðnason varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Austurfjörutangi - Ólögmæt háttsemi Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 202207007
Skúli vék af fundi undir þessum lið.
----
Hafnarstjórn vill gjarnan leysa málið og að allir aðilar nái saman um framtíðarskipulag á útskipun á efni á Austurfjörum. Hafnarstjórn vill skoða málið betur m.t.t. lagalegrar stöðu sinnar áður en frekari skref verða tekin.
2.
Skipulagsgreinig Hornafjarðarhöfn
Málsnúmer 202208021
Hafnarstjórn barst tilboð frá Eflu verkfræðistofu vegna framtíðarskipulags á hafnarsvæðinu.
Hafnarstjórn telur að viðkomandi tilboð henti ekki fyrir það framtíðarskipulag sem unnið er að varðandi Hornafjarðarhöfn í dag.
3.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Málsnúmer 202104021
Umhverfis- og skipulagsstjóri kom og kynnti drög að nýju deiliskipulagi í Óslandi.
Hafnarstjórn samþykkir að vinna áfram með núverandi tillögur.
4.
Dýpkun á Grynnslum 2022
Málsnúmer 202203093
Nýtt skip Björgunar er komið með skráningu og komið af stað. Áætlað er að skipið komi til að dýpka á Grynnslunum þann 15 september. Skv. verksamningi á dýpkun að vera lokið þann 30. september 2022.
5.
Dýpkunartæki
Málsnúmer 202206077
Forstöðumaður Hornafjarðarhafnar gaf munnlega skýrslu um dýpkun hafnarinnar og mögulega notkun plógs til að skafa botninn með lóðsbátnum og koma efninu frá loðnubryggjunni. Viðræður eru í gangi við framleiðendur og forstöðumaður skoðar málið áfram.