Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

252. fundur
23. janúar 2023 kl. 17:00 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2023
Málsnúmer 202210066
Rekstrarniðurstaða síðasta árs kynnt eins og hún lítur út í dag.
Starfsmönnum falið að taka saman nánari upplýsingar um rekstur og þróun tekna og gjalda síðustu ár og kynna á næsta fundi hafnarstjórnar.
2.
Dýpkun á Grynnslum 2022
Málsnúmer 202203093
Hafnarstjóri kynnti stöðuna á dýpkun á Grynnslunum.
Virkt samtal um dýpkun á Grynnslunum er við Vegagerðina. Dýpkunarskipið er á Ísafirði eins og staðan er í dag og ekki á suðurleið sem stendur. Samkomulag er um að skipið komi til okkar til dýpkunarvinnu um leið og veðurgluggi til dýpkunar opnast í vetur.
3.
Fundargerðir Hafnasambandsins
4.
Viðhaldsdýpkun innan hafnar 2022 til 2026
Málsnúmer 202301048
Hafnarstjóri kynnti fyrirhugað útboð á viðhaldsdýpkun innan hafnar.
Síðasti samningur rann út 2018 en hann framlengdist til 2020 eða 2 ár. Árið 2021 er dýpkaður ytri hluti hafnarinnar vegna loðnuvertíðar og samið sérstaklega um það með aðkomu Vegagerðarinnar. Næsta reglulega dæling hefði átt að vera 2022, en vegna dælingar 2021 þurfti þess ekki. Bjóða átti verkið út á síðasta ári en það tafðist.
Hafnarstjórn samþykkir að fara í útboð dýpkun innan hafnar 2023 til 2026.
5.
Hafnsögumenn
Málsnúmer 201804092
Hafnarstjóri fór yfir ráðningu hafnsögumanns.
Hafnarstjórn staðfestir ráðningu Gunnars Þorlákssonar mælir Hafnarstjórn með að Gunnar fái réttindi hafnsögumanns við Hornafjarðarhöfn.
6.
Deiliskipulag hafnarsvæðir Krossey - endurskoðun
Málsnúmer 202301061
Sviðsstjóri umhverfis og skipulagssviðs fór yfir endurskoðun deiliskipulags á hafnarsvæði við Krossey.
Hafnarstjórn samþykkir endurskoðun deiliskipulags og felur starfsmönnum að vinna málið áfram og finna ráðgjafa sem getur tekið verkið að sér fyrir sveitarfélagið.
7.
Samningur um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Málsnúmer 202209088
Skúli Ingólfsson vék af fundu undir þessum lið. Afstaða Vegagerðarinnar um styrkhæfi dýpkunar við bryggju á Austurfjörutanga var lögð fram til kynningar og mun Litlahorn ehf. og lögmaður þess gera athugasemdir við niðurstöðuna og senda sveitarfélaginu og eftir atvikum Vegagerðinni.
Hafnarstjórn leggur áherslu á ríkan samningsvilja við Litlahorn ehf. um áframhaldandi gott samstarf.