Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

254. fundur
27. mars 2023 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason Fulltrúi ungmennaráðs
Arna Ósk Harðardóttir varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir Hafnasambandsins
Málsnúmer 202003067
Lagt fram til kynningar Hafnarstjórnar.
Hafnarstjórn tekur undir með bókun stjórnar Hafnasambandsins á 450 fundi þess undir lið 2302002HA, um of litla aðkomu sveitarfélaganna að leyfisveitingaferli um sjókvíaeldi og skort á samstarfi við sveitarfélögin um slíkt ásamt því að tekjustofn af greininni hefur ekki verið tryggður til samfélaganna þar sem eldið er stundað.
2.
Samtal við Vegagerðina um málefni hafnarinnar
Málsnúmer 202303100
Kjartan Elíasson frá Vegagerðinni kom á fundinn og fjallaði um málefni Vegagerðarinnar og Hornafjarðarhafnar.
Fjallað var um samning sem undirritaður verður innan skamms um viðhaldsdýpkun innan hafnar árin 2023-2026.

Einnig var farið var vel yfir dýpkun á Grynnslunum og stöðu rannsókna Dönsku straumfræðistofnunarinnar (Danish Hydraulic Institute DHI) á þeim.
Skýrsla DHI um nýjustu rannsóknir og mælingar á Grynnslunum er væntanleg í maí. Í framhaldi af því verður boðað til fundar með hagsmunaaðilum um niðurstöður skýrslunnar og hver næstu skref í rannsóknum verða.

Búið er að eyrnamerkja fjármagn til áframhaldandi rannsókna á Grynnslunum og mikilvægt að halda áfram af krafti og finna út hvernig halda má þeim opnum með varanlegri hætti og tryggja áreiðanleika siglinga um Hornafjörð til framtíðar.

Einnig voru rædd fleiri málefni hafnarinnar og meðal annars var óskað eftir því við Vegagerðina að hefja strax skoðun á hönnun og breytingum á nýjum viðlegukanti við Miklagarð ásamt endurnýjun á Birni Lóðs.