Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

255. fundur
27. apríl 2023 kl. 17:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason Fulltrúi ungmennaráðs
Karl Heimir Einarsson varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson Bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Óvissa um dýpkun á Grynnslunum
Málsnúmer 202102083
Fram hefur komið hjá Vegagerðinni ætlunin er að bíða með að taka ákvörðun um dýpkun á Grynnslunum þar til niðurstöður líkanrannsókna liggja fyrir sem unnar eru af Dönsku straumfræðistofnuninni DHI. Skýrslu og niðurstöðu frá þeim er að vænta um miðjan maí. Óvissa um dýpkun á Grynnslunum hefur valdið því að okkar öflugasta fyrirtæki Skinney-Þinganes hefur tekið til endurskoðunar áætlanir félagsins um stórfelda uppbyggingu uppsjávarvinnslu félagsins í sveitarfélaginu.
Hafnarstjórn harmar þá grafalvarlegu stöðu sem upp er komin varðandi dýpkun á Grynnslunum. Hafnarstjórn skorar á Vegagerðina og Innviðaráðuneytið að eyða tafarlaust þeirri óvissu sem er um málið og tryggja stórhuga uppbyggingaráform í sveitafélaginu og fyrirsjánleika varðandi Grynnslin, enda er hér um að ræða aðra lífæð samfélagsins.
2.
Fjárhagsstaða Hafnarsjóðs
Málsnúmer 202006052
Bæjarstjóri fór yfir rekstur Hafnarsjóðs fyrir árið 2022 og samanburð við fyrri ár.
Lagt fram til kynningar.