Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

257. fundur
12. júní 2023 kl. 17:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafna
Dagskrá
1.
Deiliskipulag hafnarsvæðis Krossey - endurskoðun
Málsnúmer 202301061
Alta sem er ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í skipulagi og byggðaþróun kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðunni á vinnu við endurskoðun á deiliskipulagi hafnarsvæðis við Krossey.
Hafnarstjórn þakkar góða yfirferð og samtal um vinnuna við skipulagið. Hafnarstjórn leggur áherslu á virkt samtal við hagaðila og þá sem eru með starfsemi á svæðinu við skipulagsvinnuna.
2.
Samtal við Vegagerðina um málefni hafnarinnar
Málsnúmer 202303100
Farið var yfir nýjustu tíðindi varðandi dýpkun á Grynnslunum.
Innviðaráðherra hefur falið Vegagerðinni að hefja tafarlaust undirbúning aðgerða við dýpkun innsiglingarleiðarinnar um Grynnslin. Hafnarstjórn fagnar því að þeirri miklu óvissu sem ríkt hefur um dýpkun hafi nú verið eytt og að verkefnið verði unnið í góðu samstarfi við Hornafjarðarhöfn og heimafólk.