Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

258. fundur
4. september 2023 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Karl Heimir Einarsson varamaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Kröfubréf - Skaðabótakrafa vegna vanefnda á samningi
Málsnúmer 202307002
Skúli Ingólfsson vék af fundi undir þessum lið. Á fundi bæjarráðs Hornafjarðar þann 10. ágúst sl. var bæjarstjóra, sem einnig er hafnarstjóri, og hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar falið að upp viðræður við Litlahorn ehf, með það að markmiði að gera samning sem skýrir rekstrarform og eiganda hafnarinnar og fellur að Hafnarlögum nr. 61/2003.
Sveitarfélagið hefur leitað til Gísla Gíslason stjórnarformann Þróunarfélagsins Breiðar. Gísli mun vera sveitarfélaginu innan handar í samingaviðræðum við Litlahorn ehf. um nýjan samning. Gísli hefur mikla reynslu og þekkingu af hafnarmálum og vonast hafnarstjórn til að samningar náist sem allra fyrst.
2.
Viðhaldsdýpkun innan hafnar 2022 2026
Málsnúmer 202301048
Samningur um viðhaldsdýpkun innan hafnar var undirritaður á milli Hafnarsjóðs Hornafjarðar og Dýpkunarfélagsins Trolli ehf. þann 28. júní sl.
Lagt fram til kynningar.
3.
Dýpkun á Grynnslum 2022
Málsnúmer 202203093
Vegagerðinni var fyrr í sumar falið að hefja undirbúning aðgerða við dýpkun innsiglingarleiðarinnar um Grynnslin.
Dýpkunarskipið mun byrja dýpkun á Grynnslum í nóvember og nýta þá veðurglugga sem gefast í vetur til þess að dýpka.
4.
Krosseyjarvegur 2 - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202307065
Ósk Skinneyjar - Þinganess um breytingu á deiliskipulaginu við Krossey. Til stendur að koma upp 500kW landtengibúnaði hjá sem verður væntanlega staðsettur í viðbyggingu við fiskiðjuverið.
Hafnarstjórn samþykkir að unnið verði að breytingu á deiliskipulagi og að framkvæmdin fari í gegn um hafnarsvæði.
Hafnarstjórn fagnar því að Skinney - Þinganes komi upp fullkomnum landtengibúnaði fyrir sinn flota enda mjög umhverfisvænt verkefni til lengri tíma litið.
5.
Deiliskipulag hafnarsvæðis Krossey - endurskoðun
Málsnúmer 202301061
Fyrirhugað er að gera breytingar á deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið við Krossey. Breytingar ná m.a. til umferðarskipulags, lóðamarka, byggingarreita, almennra skilmála sem og sérskilmála fyrir einstaka lóðir.
Brynja Dögg kynnti lýsingu að deiliskipulagi Krossey sem var í kynningu í sumar, engar athugasemdir bárust.
6.
Fundargerðir Hafnasambandsins
Málsnúmer 202003067
Fundargerðinar lagðar fram til kynningar.