Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

264. fundur
22. apríl 2024 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
DHI AS Rannsóknarvinna
Málsnúmer 202401106
Lokið er við að dýpka um 130.000 m3 eins og samningur kvað á um. Verkefnið gekk vel enda tíðarfarið hagfellt en þess má líka geta að áhöfn skipsins sem stóð sig einkar vel í sinni vinnu.DHI vinnur að rannsóknum í samráði við Vegagerðina, sveitarfélagið og hagsmunaaðila á gagnsemi stórra leiðigarða út á Grynnslunum. Sú vinna lofar góðu en henni er þó ekki lokið.
Hafnarstjórn lýsir ánægju með að rannsóknir sýna það að stærri leiðigarðar eru mögulegir við Hornafjarðarós til að tryggja siglingaleiðina um ósinn. En ljóst er að verkefnið er umfangsmikið og vanda þarf til verka.