Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

265. fundur
28. maí 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Þröstur Jóhannsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir og erindi Hafnasamband sveitarfélaga 2024
2.
Yfirvinna Hafnarstjórn
Málsnúmer 202405062
Erindi til hafnarstjórnar vegna gjaldskrár og opnunartíma Hornafjarðahafnar frá Smábátafélaginu Hrollaugi.
Starfsmönnum falið að skýra betur í gjaldskrá hvernig reglur hafnarinnar um yfirvinnu starfsmanna eru og hvernig innheimt er fyrir hana.
3.
Rekstur Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 202405095
Rekstraruppgjör Hornafjarðarhafnar fyrir árið 2023 lögð fram.
Tekjur Hafnarsjóðs námu 174 m.kr. á síðasta ári og voru talsvert yfir áætlun eða 50%. Gjöld hafnarinnar voru yfir áætlun sem nemur 27% en rekstrarniðurstaðan engu síður jákvæð um 58 m.kr. Jákvæð niðurstaða á síðasta ári skýrist að mestum hluta af öflugri loðnuvertíð og ljóst er að loðnubrestur mun lita niðustöðu þessa árs.
4.
DHI AS Rannsóknarvinna
Málsnúmer 202401106
Nýjustu niðurstöður rannsókna í Hornafjarðarós og sandflutninga á Grynnslunum lagðar fram og kynntar.
Hafnarstjórn lýsir ánægju með verkefnið sem unnið er í góðu samstarfi við Vegagaerðina en vinna við rannsóknir heldur áfram.
5.
Bryggjuframkvæmdir 2024
Málsnúmer 202405096
Lagt fram minnisblað frá Vegagerðinni um burðarþol núverandi loðnubryggju, "Úttekt á burðarþoli bryggju".
Bráðabirgða niðurstaða úttektar sýnir að bryggjan sem er 30 ára gömul stenst illa þær kröfur sem gera þarf til hennar miðað við stærstu og nýjustu uppsjávarskip. Hafnarstjórn felur forstöðumanni að taka upp viðræður við Vegagerðina um forgangsröðun á uppbyggingu hafnarmannvirkja á Höfn m.t.t. þess að byrja á bræðslubryggjunni í stað Miklagarðsbryggju.