Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

266. fundur
24. júní 2024 kl. 16:00 - 16:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá
1.
Dýpkun á Grynnslum 2025
Málsnúmer 202406082
Verklýsing fyrir útboð vegna dýpkunar á grynnslunum lögð fram til kynningar.
Hafnarstjórn lýsir ánægju með að útboðsferlið skuli vera komið af stað aftur og ætlunin sé að hefja dýpkun á grynnslunum í byrjun árs 2025.
2.
Bryggjuframkvæmdir 2024
Málsnúmer 202405096
Vegagerðin hefur sýnt jákvæð viðbrögð við því að fara í endurbætur á bræðslubryggjunni í stað Miklagarðsbryggju. Verið er að vinna í að kostnaðarmeta verkefnið og bera saman við fjárveitinguna sem búið var að samþykkja í verkefnið.
Hafnarstjórn þakkar jákvæð viðbrögð Vegagerðarinnar og bíður eftir niðurstöðum kostnaðarmats.