Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

270. fundur
25. nóvember 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Isold Andrea Andrésdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 202309076
Gjaldskrá 2025 fyrir Hornafjarðarhöfn lögð fram.
Hafnarstjórn samþykkir að gjaldskrá 2025 fyrir Hornafjarðahöfn verði hækkuð um 5%.
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir sat hjá.

Samþykkt með fjórum atkvæðum.
2.
Fundargerðir og erindi Hafnasamband sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202402131
Til kynningar.
3.
Breytt opnun Hafnarvog
Málsnúmer 202411068
Fyrir fundinum liggur tillaga að lausn á styttingu vinnuvikunnar hjá hafnarstarfsmönnum.
Hafnarstjórn leggur áherslu á að leitað sé allra leiða til að þjónustustig hafnarinnar skerðist ekki. Hafnarstjóra falið að finna lausn í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.
4.
Dýpkun á Grynnslum 2025
Málsnúmer 202406082
Starfsmenn frá dýpkunarfyrirtækinu Jan de Nul NV í Belgíu og Vegagerðinni komu á fundinn. Farið var yfir rannsóknir á Grynnslunum og fyrirhugaða dýpkun á þar í byrjun næsta árs en öflugt dýpkunarskip frá Belgíu kemur til Hornafjarðar um áramótin.
Hafnarstjórn þakkar góða heimsókn og yfirferð á fyrirhuguðu verki.