Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

272. fundur
24. febrúar 2025 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Ögmundur Jón Guðnason varamaður
Helga Valgerður Friðriksdóttir varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir og erindi Hafnasamband sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202402131
Til kynningar.
2.
Tillaga um sameiningu Áhaldahúss og Hafnarinnar
Málsnúmer 202502024
Minnisblað um tillögu um sameiningu Áhaldahúss og Hafnarinnar lögð fram. Hafnarstjóri fór einnig yfir með hvaða hætti staðið verður að sameiningunni frá ýmsum hliðum, verði hún samþykkt.
Hafnarstjórn er jákvæð fyrir sameiningunni en leggur jafnframt áherslu á að innleiðingin sé unnin áfram í góðu samtali við starfsmenn, enda um að ræða verðmætan hóp með dýmæta þekkingu og reynslu.

Samþykkt samhljóða.
3.
Flotbryggja fyrir Björgunarskip
Málsnúmer 202502019
Nú liggur fyrir að við Hornfirðingar fáum nýtt og glæsilegt björgunarskip til okkar í sumar (vonandi á Humarhátíð). Lagt fram erindi frá Björgunafélagi Hornafjarðar þar sem kynnt er að Björgunarbátasjóður Hornafjarðar eigi von á nýju björgunarskipi en áætlað er að það skipið verði afhent mánaðarmótin júní-júlí á þessu ári. Nýja skipið er ekki hannað til að standa við fasta bryggju, líkt og núverandi skip og óskar Björgunarbátasjóður eftir samtali við Hafnarstjórn um aðstöðu og staðsetningu nýs björgunarskips.
Hafnarstjórn lýsir ánægju með að nýtt björgunarskip komi til Hornafjarðar innan skamms. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leiti kaup á flotbryggju og flutningi hennar fyrir nýja björgunarskipið og vísar málinu til fjármálasviðs til gerðar viðauka. Bryggjan mun verða staðsett á sama stað og núverandi skip liggur.

Samþykkt samhljóða.
4.
Dýpkun á Grynnslum 2025
Málsnúmer 202406082
Dúpkun á Grynnslum hefur gengið vel það sem af er ári - en tíðarfarið síðustu vikur hefur þó hægt á verkinu. Öflugt dýpkunarskip, M/W Tristao Da Cunha, hefur unnið að dýpkun frá því í byrjun janúar. Í dag er búið að taka um 200.000 m3 af efni. Skipið fer af landi brott í lok febrúar. Skv. síðustu mælingu sem gerð var 14. feb sl. leit innsigling/skurðurinn á Grynnslunum vel út.
Hafnarstjórn lýsir ánægju með vinnu skipsins og afköst það sem af er. Augljóst er að miklu skiptir að vera með jafn öflugt skip við dýpkun og raun ber vitni.

Til kynningar.
5.
Ráðning Hafnsögumanns
Málsnúmer 202502083
Mál lagt fram til upplýsingar fyrir Hafnarstjórn. Ef bæjarstjórn samþykkir sameiningu Áhaldahúss og Hafnarinnar til reynslu í eitt ár, er ljóst að auglýsa þarf eftir Hafnsögumanni þar sem það fækkar þá um einn á Höfninni og þá stöðu verður að manna.
Hafnarstjórn samþykkir að auglýsa eftir hafnsögumanni, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar á sameiningu Áhaldahúss og Hafnarinnar.

Samþykkt samhljóða.