hafnarstjórn Hornafjarðar
277. fundur
25. ágúst 2025
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Halldór Tjörvi Einarsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Helga Valgerður Friðriksdóttir
varamaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Vignir Júlíusson
Forstöðumaður
Dagskrá
1.
Ósk um Styrk í Björgunarskip
Slysavarnafélagið Landsbjörg tók þá ákvörðun að flýta endurnýjun á björgunarskipinu Ingibjörgu í Hornafirði enda er Hornafjörður ein af lykilstaðsetningum fyrir björgunarskip. Ný Ingibjörg kom til Hafnar 12. júlí sl. Björgunarfélag Hornafjarðar (BH) vinnur nú hörðum höndum að því að ljúka fjármögnun á nýju skipi og óskar eftir styrk frá sveitarfélaginu vegna þess.Bæjarráð vísaði styrkbeiðni BH til hafnarstjórnar til umfjöllunar.
Sveitarfélagið Hornafjörður og Hornafjarðarhöfn hefur staðið þétt við bakið á Björgunarfélagi Hornafjarðar (BH). Á árunum 2023 til 2025 hefur sveitarfélagið styrkt BH um rúmlega 50 m.kr. Annars vegar vegna uppbyggingar nýrrar og glæsilegrar Björgunarmiðstöðvarinnar og hins vegar vegna framkvæmda við hafnaraðstöðu fyrir nýtt björgunarskip.
Hafnarstjórn samþykkir að styrkja Björgunarfélag Hornafjarðar um 5 milljónir króna á ári næstu 3 árin, 2026 til 2028.
Vísað til fjáhagsáærlunar 2026.
Samþykkt samhljóða.
Hafnarstjórn samþykkir að styrkja Björgunarfélag Hornafjarðar um 5 milljónir króna á ári næstu 3 árin, 2026 til 2028.
Vísað til fjáhagsáærlunar 2026.
Samþykkt samhljóða.
2.
Viðhaldsdýpkun innan hafnar 2022 2026
Dýpkun lokið fjarlægðir 57.080 m3 af efni á þessu ári.
Dýpkun lokið fjarlægðir 57.080 m3 af efni á þessu ári.
3.
Hafnarstjórn skoðar nýtt björgunarskip og framkvæmdir við aðstöðu nýs skips
Björgunarfélag Hornafjarðar býður Hafnarstjórn að koma og kynna sér nýtt og glæsilegt björgunarskip. Einnig vegna skoðaðar þær framkvæmdir sem gerðar hafa verið við hafnaraðstöðu nýja skipsins.
Hafnarstjórn fagnar komu nýs og öflugs björgunarskips og glæsilegrar aðstöðu.