hafnarstjórn Hornafjarðar
281. fundur
26. janúar 2026
kl.
16:00
-
17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson
formaður
Halldór Tjörvi Einarsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Reynir Ívarsson
Fulltrúi ungmennaráðs
Ögmundur Jón Guðnason
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
Vignir Júlíusson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Hornafjörður náttúrulega
Kynningu og samráði vegna endurskoðaðrar stefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega!, er nú lokið eftir fjögurra vikna kynningar- og umsagnaferli. Lagt fram til umræðu og umfjöllunnar.
Hafnarstjórn lýsir ánægju með þær breytingar sem gerðar hafa verið á stefnunni og gerir engar athugasemdir við hana.
2.
Fundargerðir og erindi Hafnasambands sveitarfélaga 2024-25
Lagt til kynningar.
3.
Hafnasamband Íslands
Lögð fram til kynningar samantekt Hafnasambands Íslands, Framtíðin og íslenskar hafnir, sem byggir á vinnustofu haldinni í Ólafsvík haustið 2025 og dregur saman helstu áskoranir og tækifæri íslenskra hafna á næstu árum.
Lagt til kynningar.
4.
Dýpkun á Grynnslum 2026-2028
Lagt fram erindi frá Vegagerðinni þar sem óskað er eftir samþykki Hafnarstjórnar Hornafjarðarhafnar til að ganga til samninga við lægstbjóðanda í útboði vegna dýpkunar á Grynnslunum 2026 til 2028. Verkefnið felur í sér dýpkun að meðaltali rúmlega 650.000 m³ á ári yfir tímabilið, samtals tæplega 2 milljónir m³. Hafnarstjórn leggur áherslu á mikilvægi þess að höfnin, sem er önnur lífæð samfélagsins og lykilinnviður fyrir atvinnulíf og byggð, njóti loks raunverulegs fyrirsjáanleika varðandi dýpkun. Í samstarfi við Vegagerðina og sérfræðinga, meðal annars DHI, hefur verið unnið að ítarlegum greiningum sem sýna að sandburður á svæðinu er kerfisbundinn og að hefðbundin dýpkun er í eðli sínu bráðabirgðalausn sem undirstrikar mikilvægi áframhaldandi faglegs samtals og rannsókna um varanlegri lausnir.
Hafnarstjórn fagnar niðurstöðu útboðsins, sem markar í fyrsta sinn raunverulegan fyrirsjáanleika í þessu lykilverkefni sem skiptir sköpum fyrir fyrirtæki sem hafa fjárfest hafa fyrir milljarða hér á Höfn og geta ekki búið við óvissu um aðgengi að höfninni.
Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Boskalis Westminister Limited, í samræmi við niðurstöðu útboðsins og tillögu Vegagerðarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Boskalis Westminister Limited, í samræmi við niðurstöðu útboðsins og tillögu Vegagerðarinnar.
Samþykkt samhljóða.
5.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2026
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar lögð fram. Hækkun á gjalskrá nemur 5% og hækkun á launalið gjaldskrár er 7%. Framvegis verður gjaldskrá bundin vísitölu neysluverðs og skal hún endurreiknuð árlega 1. janúar í samræmi við breytingar á vísitölunni.
Hafnarstjórn samþykkir gjaldskrá 2026 fyrir Hornafjarðahöfn.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Fjárhagsáætlun 2026
Lögð fram fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar fyrir árið 2026.
Hafnarstjórn samþykkir framlagða fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar fyrir árið 2026.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.