Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

283. fundur
7. apríl 2026 kl. 10:00 - 11:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Skúli Ingólfsson formaður
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson hafnarstjóri / bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Aðalskipulagsbreyting vegna uppbyggingu miðbæjar á Höfn
Málsnúmer 202602067
Tekin er fyrir tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna hóteláforma við smábátahöfnina. Samkvæmt tillögu stækkar miðsvæði niður á hafnarsvæði á milli Pakkúss og Bátstanga til að rúma þar ferðaþjónustu í samspili við hafnarstarfsemi.
Hafnarstjórn leggur til að breytingin verði felld inn í endurskoðun aðalskipulags. Hafnarstjórn leggur áherslu á að hafnarsækin starfsemi verði ríkjandi og að hugað verði sérstakelga að umferðaröryggi um Óslandsveg.
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.